Nýir framkvæmdastjórar á skrifstofum Norrænu ráðherranefndarinnar í Lettlandi og Litháen

09.04.25 | Fréttir
Kontorchefer
Ljósmyndari
Norden
Nina Hvid Enevoldsen og Ole Andreas Lindeman taka við stöðu framkvæmdastjóra á skrifstofum Norrænu ráðherranefndarinnar í Lettlandi og Litháen. Þau munu þróa áfram náið og langvarandi samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna sem er mikilvægara nú en nokkru sinni.

Norræna ráðherranefndin hefur átt í samstarfi við Eistland, Lettland og Litháen frá því snemma á tíunda áratug síðustu aldar og rekur norrænar skrifstofur í öllum þremur löndunum. Um mikilvægt samstarf er að ræða sem nú mun eflast með aðkomu Ninu Hvid Enevoldsen og Ole Andreas Lindeman. Þau munu leiða núverandi og ný verkefni í Lettlandi og Litháen sem ætlað er að stuðla að lýðræðislegu og kröftugu Eystrasaltssvæði.

Nina Hvid Enevoldsen býr að mikilli reynslu úr dönsku utanríkisþjónustunni og fer í dag fyrir vinnu danska sendiráðsins í Póllandi í efnahags- og viðskiptamálum. Þá hefur hún einnig reynslu úr atvinnulífinu, öðrum dönskum ráðuneytum og framkvæmdastjórn ESB. Þegar Nina hefur störf mun hún beina sjónum sínum að samvinnu, ekki aðeins á Eystrasaltssvæðinu heldur einnig með öðrum löndum í Evrópu:
„Ég vil nýta samstarf og norræna samheldni til að efla lýðræði í Evrópu á grundvelli norrænna gilda í samvinnu við Eystrasaltsríkin, meðal annars með því að auka samstarfið við önnur Evrópulönd,“ segir Nina Hvid Enevoldsen.

Ole Andreas Lindeman hefur mikla reynslu úr norsku utanríkisþjónustunni þar sem hann hefur meðal annars verið sendiherra og yfirmaður norskra utanríkisstöðva víða um heim, þar á meðal í næsta nágrenni Norðurlanda í austri. Reynsla Ole kemur að góðum notum á erfiðum tímum á svæðinu: 
„Það verður mikilvægara en nokkru sinni að vinna að lausnum fram til ársins 2030. Traust, samþætting og félagsleg sjálfbærni eru mikilvægustu tólin sem við höfum til að standa vörð um gildi okkar á þessum óvissutímum,“ segir Ole Andreas Lindaman.

Þekking á svæðinu og reynsla af alþjóðamálum

Skrifstofur Norrænu ráðherranefndarinnar í Eystrasaltsríkjunum vinna með verkefni og áætlanir sem þróast og breytast í takt við tíðaranda á svæðinu. Að sögn Karenar Ellemann, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar, er því mikilvægt að framkvæmdastjórar þeirra hafi þekkingu á svæðinu og reynslu af alþjóðamálum, og hún býður þau velkomin til starfa:

„Það gleður mig mjög að okkur hafi tekist að fá Ninu Hvid Enevoldsen og Ole Andreas Lindeman til að leiða skrifstofur okkar í Lettlandi og Litháen. Þau búa bæði að reynslu af alþjóðasamstarfi og þekkingu á áskorunum og tækifærum á Eystrasaltssvæðinu. Ég býð þau innilega velkomin“ segir Karen Ellemann.

Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar

Framkvæmdastjórarnir tveir taka til starfa í ágúst og taka við af Helén Nilsson í Litháen og Stefan Eriksson í Lettlandi. Helén og Stefan fá miklar þakkir fyrir störf sín og þjónustu í þágu norræns og norræns-baltnesks samstarfs í að verða átta ár.