Nýr samningur styrkir norræna kvikmynda- og sjónvarpsefnisgerð

19.12.19 | Fréttir
Queen of Hearts Winners of the Nordic Council Film prize
Photographer
Magnus Fröderberg/norden.org

Dronningen hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2019

Menningarmálaráðherrar Norðurlanda ætla áfram að setja norrænar kvikmyndir og sjónvarpsefni í forgang. Ráðherrarnir, ásamt norrænu kvikmyndastofnununum fimm og 16 sjónvarpsstöðvum, hafa nú gert samning við Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn til fimm ára. Samningurinn er sá umfangsmesti til þessa og tekur gildi í janúar 2020. Þrír nýir aðilar eiga þátt að samningnum í ár.

Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn er í brennidepli hjá norrænu menningarmálaráðherrunum, en hlutverk sjóðsins er að styrkja stöðu Norðurlanda á alþjóðamarkaði með því að styðja við framleiðslu og dreifingu norrænna kvikmynda og sjónvarpsefnis. Norrænu menningarmálaráðherrarnir hafa lýst yfir ánægju með nýja samninginn, sem á einnig að stuðla að auknum menningarskilningi milli Norðurlandabúa.

- Vinsældir þáttaraða á borð við „SKAM“, „Brúnna“ og „Ófærð“ hafa á undanförnum árum aukið áhorf Norðurlandabúa á efni frá hinum Norðurlöndunum. Norrænt afþreyingarefni getur veitt okkur innsýn í tungumál og menningu hvers annars. Nýi samningurinn er metnaðarfullur og að honum standa fleiri aðilar en nokkru sinni fyrr. Hann mun hjálpa okkur að viðhalda sterkri stöðu á alþjóðamarkaði og jafnframt fjárfesta áfram í börnum og ungmennum, hæfileikaríku fólki og heimildarmyndagerð, segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra Íslands og formaður menningarmálaráðherranna.

Nýjar forsendur með nýjum samstarfsaðilum

Á sama tíma og norrænum kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum hefur farnast vel á Norðurlöndum og víðar, hefur dreifing efnis verið að breytast í takt við nýja markaði og breyttar sjónvarpsvenjur. Það útskýrist bæði af tækniþróun og af breytingum á sjónvarpsáhorfi og netnotkun, sérstaklega meðal ungs fólks.

- Við berum miklar væntingar til samvinnu næstu ára. Með nýjum samstarfsaðilum á borð við þvernorrænu fyrirtækin NENT Group og C More Entertainment hefur sjóðurinn opnað dyrnar fyrir norrænum streymisveitum. Þá er norski netvettvangurinn VGTV mikilvægur aðili í heimildamyndagerð og fjarskiptafyrirtækið Síminn styrkir enn frekar framlag Íslands.  Í heild sinni er samningurinn staðfesting á því að Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn styður ásamt samstarfsaðilum sínum við framleiðslu á fjölbreyttum sögum og verðlaunaefni. Sjóðurinn stuðlar einnig að norrænu menningarsamstarfi almennt. Við erum ánægð með áframhaldandi stuðning og traust frá norrænu menningarmálaráðherrunum, segir Liselott Forsman, framkvæmdastjóri Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins.

Styrkir til kvikmynda-, heimildarmynda- og sjónvarpsefnisgerðar

Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn styrkir framleiðslu og dreifingu á rúmlega 50 kvikmyndum, heimildarmyndum og sjónvarpsþáttaröðum á ári hverju. Sjóðurinn skipuleggur einnig fjölda viðburða og gegnir hlutverki skrifstofu fyrir kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs sem veitt eru í lok október á hverju ári.

Heildarfjármagn sjóðsins nemur 83 milljónum danskra króna. Þar af er þriðjungur frá Norrænu ráðherranefndinni, þriðjungur frá kvikmyndastofnunum landanna fimm og þriðjungur frá 16 norrænum sjónvarpsstöðvum sem taka þátt í samstarfinu, bæði ríkis- og einkareknum.