Öryggi sjúklinga gagnvart vafasömum flökkulæknum tryggt

11.12.18 | Fréttir
læger

læger 

Photographer
Scanpix

Endurskoðaður samningur gagnast sjúklingum og heilbrigðisstarfsfólki

Endurskoðaður samningur Norrænu ráðherranefndarinnar eykur enn frekar öryggi sjúklinga gagnvart því að lenda í höndum vafasams heilbrigðisstarfsfólks sem ferðast til norrænu ríkjanna og milli þeirra án tilskilinna starfsréttinda og í versta falli með kvartanir frá sjúklingum og uppsagnir í farteskinu. Grænland og Færeyjar eru nú einnig með.

„Ég er ánægð með að norrænu ríkin undirriti nú þennan samning eftir margra ára viðræður. Með samningnum styrkist norrænt samstarf um umönnunar- og heilbrigðissamstarf umtalsvert og sömuleiðis er samstarf um eftirlit aukið, sagði sænski félagsmálaráðherrann og fulltrúi í Norrænu ráðherranefndinni um félags- og heilbrigðismál“, Annika Strandhäll, þegar hún undirritaði samninginn ásamt sendiherrum Danmerkur, Noregs, Finnlands og Íslands þann 11. desember. Hinn endurskoðaði samningur eykur möguleika yfirvalda á Norðurlöndum til þess að miðla eftirlitsupplýsingum um tilteknar heilbrigðisstéttir þegar þær ferðast milli norrænu ríkjanna. Nánar tiltekið er skerpt á Arjeplogsamningnum þannig að hann samræmist tilskipun Evrópusambandsins um menntun og hæfi 2005/36/EB fyrir Grænland og Færeyjar.  

Nú er norrænt samstarf um umönnunar- og heilbrigðissamstarf styrkt umtalsvert og sömuleiðis er samstarf um eftirlit aukið

 

 

Annika Strandhäll, Norrænu ráðherranefndinni um félags- og heilbrigðismál

Öryggi fyrir einstaka sjúklinga

Samningur um að skiptast á upplýsingum um þessa faghópa hefur verið til staðar síðan 1993 en hefur verið gagnrýndur fyrir að vera ekki nógu skilvirkur. Margir muna líklega eftir sögum af hættulegum flökkulæknum. Í Danmörku sagði DR árið 2016 til dæmis frá lækni sem í hefur flakkað milli starfa í Svíþjóð, Noregi og Danmörku með slóðina af kvörtunum, kærum og glötuðum læknaréttindum á eftir sér. Án þess að það stöðvaði hann. Samningurinn styður stjórnvöld við að koma í veg fyrir slíka atburði og þannig skapa raunverulegan virðisauka og öryggi fyrir einstaka sjúklinga.

Annika Strandhäll, félagsmálaráðherra Svíþjóðar, og sendiherrar Danmerkur, Noregs, Finnlands og Íslands í Svíþjóð. ​​​​​​ 

Hreyfanleiki og öryggi sjúklinga verður að fylgjast að

„Norræna ráðherranefndin vinnur að frjálsri för heilbrigðisstarfsfólks og öryggi borgaranna með því að tryggja að hæft starfsfólk meðhöndli það þegar það veikist. Þessi samningur er gott dæmi um þetta,“ segir Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Finnland og Ísland eru þegar aðilar að samningnum. Og nú hafa Grænland og Færeyjar bæst við með sams konar aðild og hin Norðurlöndin fimm. Þau njóta nú sama ávinnings af því aukna öryggi fyrir sjúklinga sem samningurinn hefur í för með sér.     

Norræna ráðherranefndin vinnur að frjálsri för heilbrigðisstarfólks og öryggi borgara með því að tryggja að hæft starfsfólk meðhöndli það þegar það veikist.

Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar
Contact information