Stuðningur Norðurlanda skiptir sköpum fyrir Belarús

30.10.24 | Fréttir
Sviatlana Tsikhanouskaya
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
„Belarús á heima meðal evrópskra þjóða. Um leið erum við mikilvægur liður í framtíðaröryggi Evrópu.“ Þetta voru skilaboð Svjatlönu Tsíkhanoúskaja þegar hún ávarpaði norræna þingmenn á 76. þingi Norðurlandaráðs á Íslandi.

Svjatlönu Tsíkhanoúskaja var boðið að ávarpa þingið í krafti formennsku Íslendinga í Norðurlandaráði. Yfirskrift þingsins í ár er „Friður og öryggi á norðurslóðum“. Í ræðu sinni þakkaði Tsíkhanoúskaja norrænu löndunum fyrir stuðning þeirra.

„Á erfiðum tímum stóðuð þið ávallt með okkur. Þið töluðuð ekki bara um samstöðu, þið sýnduð hana. Þið höfðuð trú á Belarússum löngu áður en augu heimsins beindust að okkur. Við þurfum á stuðningi Norðurlanda að halda sem aldrei fyrr. Við þurfum öfluga rödd ykkar, orku ykkar, samkennd og samstöðu til þess að ljúka því verki sem hófst árið 2020

Við þurfum á stuðningi Norðurlanda að halda sem aldrei fyrr. Við þurfum öfluga rödd ykkar, orku ykkar, samkennd og samstöðu til þess að ljúka því verki sem hófst árið 2020

Svjatlana Tsíkhanoúskaja

Bryndís Haraldsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, fer ekki í grafgötur með mikilvægi þess að standa vörð um gildi okkar. Samstaða með stjórnarandstöðunni í Belarús er í anda þeirrar afstöðu.

„Við verðum að taka öryggismál á norðurslóðum alvarlega. Við verðum að standa gegn árásum á þau gildi sem skapað hafa þau lífsgæði sem við lifum við á Norðurlöndum; lýðræði, mannréttindi, jafnrétti og velferð. Við verðum að minna okkur á að það sem á sér stað í Úkraínu, og einhverju leyti í Belarús, er árás á gildi okkar og við verðum að hlusta á þau sem berjast gegn þeim. Til að mæta þeim sem grafa undan gildum okkar verðum við að standa saman,“ sagði Bryndís.

Búa sig undir lýðræðislega framtíð

Tsíkhanoúskaja undirstrikaði að Belarússar væru ekki búnir að gefast upp. Þótt stríð og undirokun hafi rekið mótmælahreyfinguna neðanjarðar hafa íbúar Belarús ekki skipt um skoðun. Þeir taka saman höndum og dreifa sönnum fréttum. Að sögn Tsíkhanoúskaja leka jafnvel háttsettir embættismenn mikilvægum upplýsingum til almennings. Tsíkhanoúskaja fer nú fyrir ríkisstjórn í útlegð.

„Öfugt við stjórnvöld vinnum við eftir lýðræðislegum og gagnsæjum leiðum. Við þjónum Belarússum, jafnt þeim sem eru í landinu og þeim sem eru í útlegð. Við hyggjumst fljótlega gefa út okkar eigin vegabréf og við munum óska eftir stuðningi Norðurlanda við það,“ segir Tsíkhanoúskaja.

Þreytan getur riðið lýðræðinu að fullu

Þingmenn Norðurlandaráðs risu úr sætum og klöppuðu fyrir Svjatlönu Tsíkhanoúskaja þegar hún óskaði sérstaklega eftir því að norrænu löndin hefðu ungt fólk, fjölmiðla og mannréttindasamtök frá Belarús með í norrænum aðgerðum. Jafnframt varaði hún við því að láta undan stríðsþreytu. Hún lagði áherslu á að stuðningur við lýðræðishreyfingu Belarús sé ekki góðgerðarstarf heldur fjárfesting. Frjálst Belarús hafi í för með sér öryggi, stöðugleika og frið í Evrópu.

„Til þess að sigra þurfum við úthald. En umfram allt þurfum við stöðugleika. Við verðum að vera óhvikul og föst fyrir því ef við hörfum, ef við gefum afslátt af gildum okkar og markmiðum fyrir skammtímaávinning, mun lýðræðið tapa,“ sagði Tsíkhanoúskaja.

Til þess að sigra þurfum við úthald. En umfram allt þurfum við stöðugleika. Við verðum að vera óhvikul og föst fyrir því ef við hörfum, ef við gefum afslátt af gildum okkar og markmiðum fyrir skammtímaávinning, mun lýðræðið tapa

Svjatlana Tsíkhanoúskaja

Baksagan: Leiðtogi fyrir tilviljun

Að sögn Svjatlönu Tsíkhanoúskaja var það tilviljun að hún varð leiðtogi stjórnarandstöðu Belarús. Hún kom fram á sjónarsviðið þegar hún véfengdi forsetakosningar í Belarús í ágúst 2020. Hún bauð sig fram til forseta eftir að eiginmaður hennar, Siarhei Tsíkhanoúskí, vinsæll bloggari og forsetaframbjóðandi, var handtekinn vegna gagnrýni sinnar á forsetann, Aleksander Lúkasjenkó.

Kosningarnar mörkuðust af víðtækum kosningasvindli. Þegar Lúkasjenkó lýsti yfir sigri varð Tsíkhanoúskaja að holdgervingi stjórnarandstöðunnar og talskona lýðræðis, mannréttinda og réttlaætis í Belarús.

Tsíkhanoúskaja neyddist til þess að yfirgefa Belarús í kjölfar hótana gegn henni og fjölskyldu hennar og hefur verið í útlegð síðan, einkum í Litháen. Þaðan heldur hún áfram vinnu sinni fyrir lýðræðishreyfinguna og aflar alþjóðlegs stuðnings við viðskiptaþvinganir gagnvart stjórn Lúkasjenkós. Hún hefur jafnframt notið stuðnings ýmissa evrópskra leiðtoga og samtaka og hlotið verðlaun fyrir störf sín í þágu frelsis og lýðræðis.