Þetta eru verðlaunahafar Norðurlandaráðs 2021

02.11.21 | Fréttir
Här är vinnarna av Nordiska rådets priser 2021

Här är vinnarna av Nordiska rådets priser 2021

Photographer
Norden.org/Magnus Fröderberg
Danmörk, Grænland, Færeyjar og Svíþjóð gátu fagnað þegar verðlaun Norðurlandaráðs voru afhent á verðlaunahátíð í beinni útsendingu frá Skuespilhuset í Kaupmannahöfn á þriðjudagskvöld.

Danska kvikmyndin Flugt hlaut kvikmyndverðlaunin og umhverfisverðlaunin runnu til Concito fyrir gagnagrunninn Den Store Klimadatabase. Bókmenntaverðlaunin fóru í fyrsta sinn til Grænlands en Niviaq Korneliussen hreppti þau fyrir skáldsöguna Naasuliardarpi („Blómadalurinn“) og færeyska tónlistarkonan Eivør Pálsdóttir hlaut tónlistarverðlaunin. Sænski rithöfundurinn Elin Persson hlaut barna og unglingabókmenntaverðlaunin fyrir bók sína De afghanska sönerna („Afgönsku synirnir“).

Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2021

Hin sænska Elin Persson hlaut barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2021 fyrir bókina De afghanska sönerna. Verk sem gegnum bókmenntalega frásögn skapar andrúmsloft sem minnir á heimildarverk og byggir listilega upp mynd af veruleika þar sem enginn er góður eða vondur.

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2021

Danska kvikmyndin Flugt eftir handritsöfundinn og leikstjórann Jonas Poher Rasmussen, handritshöfundinn Amin og framleiðendurna Monicu Hellström, Charlotte de la Gournerie og Signe Byrge Sørensen hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2021 fyrir verk þar sem hið fagurfræðilega, pólitíska og mannlega fer saman í áhrifamikilli og listrænni heild.

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2021

Færeyska tónlistarkonan Eivør Pálsdóttir hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2021 fyrir að hafa með þrotlausri vinnusemi sinni undanfarin ár beint sjónum umheimsins að heimalandi sínu og fyrir að vinna af kostgæfni með eigin tónlistararfleifð og móðurmál.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2021

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2021 hlaut græna hugmyndasmiðjan Concito frá Danmörku fyrir gagnagrunninn Den Store Klimadatabase. Fyrirtækið hlýtur verðlaunin fyrir tækifæri gagnagrunnsins til að skapa grundvöll að sjálfbærari neyslu matvæla á Norðurlöndum.

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2021

Grænlenski rithöfundurinn Niviaq Korneliussen hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2021 fyrir skáldsöguna Naasuliardarpi (Blómadalurinn). Niviaq Korneliussen fær verðlaunin fyrir verk sem hefur að geyma frásögn sem er falleg en um leið sársaukafull og óvægin.

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir fimm verðlaun ár hvert: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun. Hver verðlaunahafi fær verðlaunastyttuna Norðurljós og 300 þúsund danskar krónur og eru verðlaunin veitt í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs.