Þrjú ár frá innrásinni - Norðurlönd halda áfram stuðningi við Úkraínu
Forseti Úkraínu Volodomír Selenskí, gestaræðumaður á Norðurlandaráðsþingi 2024 ásamt fulltrúum Norðurlandaráðs, norrænu forsætisráðherrunum og leiðtogum ríkisstjórna.
„Norðurlandaráð hefur allt frá upphafi hinnar grimmdarlegu og ólöglegu allsherjarárásar á Úkraínu hinn 24. febrúar 2022 fordæmt af hörku stríðsrekstur Rússlands og lýst yfir stuðningi við Úkraínu. Þetta gerum við einnig í dag af auknum krafti.
Tryggja þarf frið á forsendum Úkraínu, þar sem Úkraína kemur að samningaborðinu. Norðurlönd, Eystrasaltsríkin, ESB og NATO ásamt aðilum sem deila svipuðum gildum þurfa að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma Úkraínu til aðstoðar. Öryggi allrar Evrópu liggur að veði.
Traust er „gull Norðurlanda“. Traust okkar á lýðræðinu, til hvers annars og stofnana samfélagsins gera okkur betur í stakk búin til að takast á við rússneskan áróður. En við megum ekki vera bláeygð. Rangupplýsingum Rússa og fjölþáttaárásum þarf að taka af mikilli alvöru. Grípa þarf til varna, auka viðbúnað og efla samstöðu Norðurlanda og samstarf við aðila sem deila sömu gildum. Saman erum við sterkari.
Norðurlandaráð lýsir yfir kröftugum stuðningi og samkennd með Úkraínu og úkraínsku þjóðinni og mun halda áfram að styðja Úkraínu svo lengi sem þörf krefur. Úkraína tilheyrir lýðræðislegri Evrópu og stuðningur okkar er óhagganlegur.“
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, var aðalgestur á þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík í október 2024 og síðar í dag, 25. febrúar mun sendiherra Úkraínu í Danmörku ávarpa sameinað Norðurlandráð í Kaupmannahöfn.