Almannatryggingakerfi hvaða lands tilheyrir þú?
Aðild að almannatryggingum í tilteknu landi felur í sér að þú lýtur reglum þess lands á tilteknum sviðum og að það land ber fjárhagslega ábyrgð á að standa straum af opinberum útgjöldum vegna bóta á borð við:
- atvinnuleysistryggingar
- lífeyrisgreiðslur
- sjúkradagpeninga
- fjölskyldubætur
- heilbrigðisþjónustu
- fæðingarorlofsgreiðslur
- bætur vegna vinnuslyss
- greiðslur við andlát
Í mörgum tilvikum þarf að huga sérstaklega að þessu. Þetta á til dæmis við ef flutt er til annars lands, ef unnið er í öðru landi en því sem maður býr í eða ef unnið er fyrir vinnuveitanda í öðru landi.
Alla jafna átt þú og vinnuveitandi þinn að greiða til almannatrygginga í því landi þar sem þú átt aðild að þeim. Þó er þetta fyrirkomulag mjög misjafnt á milli Norðurlandanna. Ef þú vinnur í tveimur löndum getur það þýtt að vinnuveitanda í einu landi beri skylda til að greiða til almannatrygginga í öðru landi.
Reglur um almannatryggingakerfi hvaða lands þú tilheyrir gilda í öllum ESB- og EES-löndum og Sviss. Reglurnar geta í vissum tilvikum einnig gilt í Bretlandi, Færeyjum og Grænlandi.
Almannatryggingakerfi hvaða lands tilheyrir þú?
Meginreglan er sú að einstaklingur er tryggður af almannatryggingum í því landi sem hann starfar í. Ef þú ert ekki í vinnu nýturðu alla jafna almannatrygginga í landinu sem þú býrð í. Oft þarf þó að huga sérstaklega að þessu. Það á ekki síst við ef maður hefur störf í öðru landi, ef flutt er til annars lands eða ef lífsaðstæður breytast, til dæmis ef þú ferð á eftirlaun.
Hér fyrir neðan er að finna upplýsingar um almannatryggingar við ýmsar aðstæður. Listinn er ekki tæmandi og oft geta sérstök skilyrði átt við um tilteknar aðstæður. Því skal alltaf hafa samband við viðeigandi yfirvöld til að fá frekari upplýsingar.
Hvað merkir „vinnuland“?
Með „vinnulandi“ er átt við landið þar sem þú innir sjálfa vinnuna af hendi.
Hvað felst í „búsetu“?
Almannatryggingayfirvöld líta svo á að þú búir í því landi þar sem dvalarstaður þinn er. Í því sambandi er ekki aðeins horft til þess hvar þú átt lögheimili þitt heldur einnig hvar þú dvelur, hvernig húsnæðisaðstæður þínar eru, hvar fjölskylda þín dvelur og fleira.
ATH!
Upplýsingarnar í þessari grein eiga ekki við um allar aðstæður sem komið geta upp. Því er mikilvægt að þú hafir samband við almannatryggingayfirvöld í því landi sem þú býrð, vinnur, stundar nám eða rekstur í eða þiggur opinberar greiðslur frá til að ganga úr skugga um að þú njótir réttra trygginga.
Ef þú býrð og vinnur í sama landi áttu aðild að almannatryggingum í því landi nema þú sért hafir verið send(ur) til annars lands vegna vinnu og hafir sótt um aðild að almannatryggingum í því landi.
Ef vinnuveitandi þinn sendir þig til starfa í öðru norrænu landi getur þú (sem útsendur starfsmaður) fengið A1-vottorð sem staðfestir að þú fallir undir almannatryggingar í landinu sem þú ert útsend(ur) frá, að því gefnu að áætlað starfstímabil sé ekki lengra en 24 mánuðir.
Ef þú býrð í einu landi en starfar eingöngu í öðru landi fellur þú undir almannatryggingar í því landi sem þú starfar í.
Ein undantekning er ef vinnuveitandi þinn sendir þig til starfa í öðru norrænu landi (sem útsendan starfsmann). Í slíkum tilvikum getur þú fengið A1-vottorð sem staðfestir að þú munir falla undir almannatryggingar í landinu sem þú hefur áður átt aðild að almannatryggingum í, að því gefnu að áætlað starfstímabil sé ekki lengra en 24 mánuðir.
Ef þú vinnur í tveimur löndum og býrð í öðru þeirra áttu aðild að almannatryggingum í landinu sem þú býrð í að því gefnu að þú sért í a.m.k. 25% starfi þar. Ef þú ert í innan við 25% starfi í landinu sem þú býrð í er það heimabær þinn eða vinnuveitandans sem segir til um í hvaða landi þú átt aðild að almannatryggingum.
Ef þú ert í starfi sem embættismaður áttu aðild að almannatryggingum í landi stofnunarinnar sem þú vinnur hjá. Þetta á við jafnvel þótt þú sért einnig launþegi eða sjálfstætt starfandi.
Þrátt fyrir að þú starfir í tveimur löndum áttu aðeins aðild að almannatryggingum í einu landi í einu. Þú getur sótt um A1-vottorð frá almannatryggingastofnuninni í því landi sem þú býrð í til að fá úr því skorið hvaða almannatryggingalög eiga við um þig og til hvaða lands þú átt að greiða almannatryggingagjöld.
Danmörk og Svíþjóð hafa gert með sér Eyrarsundssamninginn. Samkvæmt honum getur þú unnið allt að 50% í því landi sem þú býrð í ef þú starfar sem launþegi fyrir saman vinnuveitanda í Danmörku og Svíþjóð.
Ef þú býrð í norrænu landi og vinnur aðeins heima hjá þér fyrir vinnuveitanda með aðsetur í öðru norrænu landi þarf vinnuveitandinn að tryggja að þú fallir undir almannatryggingar í búsetulandi þínu.
Ef þú vinnur fyrir vinnuveitanda í öðru norrænu landi og innir a.m.k. 25% af vinnunni af hendi í búsetulandi þínu er almenna reglan sú að þú njótir almannatrygginga í búsetulandi þínu. Ef þú vinnur í tveimur eða fleiri löndum skaltu hafa samband við almannatryggingastofnun í búsetulandi þínu til að ganga úr skugga um að þú hafir rétta skráningu og stöðu.
Ef þú vinnur tímabundið heima hjá þér fyrir erlendan vinnuveitanda frá norrænu landi gætir þú talist vera útsendur starfsmaður. Ef við á getur þú fengið A1-vottorð sem staðfestir rétt þinn til almannatrygginga í því landi sem þú ert útsendur starfsmaður frá. Þú getur fengið vottorðið gefið út ef áætlaður starfstími þinn erlendis er ekki meiri en 24 mánuðir.
Finnland, Svíþjóð og Noregur eru aðilar að ESB-samningnum um fjarvinnu. Samkvæmt samningnum geta starfsmenn í sérstökum tilfellum átt aðild að almannatryggingum í vinnulandinu ef þeir vinna minna en 50% fjarri búsetulandinu og meira en 50% í landi vinnuveitandans. Bæði löndin sem unnið er í þurfa að vera aðilar að ESB-samningnum um fjarvinnu.
Danmörk og Svíþjóð hafa gert með sér Eyrarsundssamninginn. Samkvæmt honum getur þú unnið allt að 50% í því landi sem þú býrð í ef þú starfar sem launþegi fyrir saman vinnuveitanda í Danmörku og Svíþjóð.
Ef þú vinnur fyrir afleysingafyrirtæki eða vinnur þvert á landamæri fyrir einn eða fleiri vinnuveitendur er mikilvægt að hafa samband við almannatryggingayfirvöld í búsetu landi þínu til að fá upplýsingar um það hvers lands reglur eiga við um þig.
Ef vinnuveitandi þinn sendir þig til starfa í öðru norrænu landi getur þú (sem útsendur starfsmaður) fengið A1-vottorð sem staðfestir að þú fallir undir almannatryggingar í landinu sem þú ert útsend(ur) frá, að því gefnu að áætlað starfstímabil sé ekki lengra en 24 mánuðir.
Ef þú vinnur eingöngu sem flugmaður eða áhafnarmeðlimur í farþega- eða fragtflugi er almenna reglan sú að þú eigir aðild að almannatryggingum í því landi þar sem þú ert með heimahöfn.
Ef vinnuveitandi þinn sendir þig til starfa í öðru norrænu landi getur þú (sem útsendur starfsmaður) fengið A1-vottorð sem staðfestir að þú fallir undir almannatryggingar í landinu sem þú ert útsend(ur) frá, að því gefnu að áætlað starfstímabil sé ekki lengra en 24 mánuðir.
Ef þú ert launþegi eða sjálfstætt starfandi og vinnur um borð í skipi er almenna reglan sú að þú eigir aðild að almannatryggingum í því landi hvers fána skipið siglir undir.
Ef þú ert launþegi og þiggur laun frá vinnuveitanda í sama landi og þú býrð í er þó almenna reglan sú að þú eigir aðild að almannatryggingum í því landi sem þú býrð í.
Ef vinnuveitandi þinn sendir þig til starfa í öðru norrænu landi getur þú (sem útsendur starfsmaður) fengið A1-vottorð sem staðfestir að þú fallir undir almannatryggingar í landinu sem þú ert útsend(ur) frá, að því gefnu að áætlað starfstímabil sé ekki lengra en 24 mánuðir.
Ef ert sjálfstætt starfandi nýturðu alla jafna almannatrygginga í landinu sem þú starfar í.
Ef þú starfar í fleiri en einu landi en innir ekki meira en 25% af starfinu af hendi í því landi sem þú býrð í áttu aðild að almannatryggingum í búsetulandi þínu.
Ef þú starfar í fleiri en einu landi en innir ekki minna en 25% af starfinu af hendi í því landi sem þú býrð í áttu aðild að almannatryggingum í því landi þar sem aðalstarfsemi þín fer fram í.
Þú þarft að sækja um A1 vottorð hjá almannatryggingastofnun í landinu sem þú býrð í. Á vottorðinu kemur fram í hvaða landi þú átt aðild að almannatryggingum og til hvaða lands þarf að greiða almannatryggingagjöld.
Ef þú ert námsmaður og ekki í vinnu þarftu að hafa samband við almannatryggingastofnanirnar til að fá úr því skorið í hvaða landi þú átt aðild að almannatryggingum. Að meginreglunni til er það búsetulandið en stofnanirnar geta einnig tekið tillit til þess hvaðan tekjur þína koma, meðal annars námslán.
Ef þú hefur hlotið finnskan rannsóknarstyrk eða styrk til listsköpunar gilda sérstakar reglur. Finna má nánari upplýsingar á síðunni „Fræðafólk og styrkþegar í Finnlandi“ eða hjá Lantbruksföretagarnas pensionsanstalt (LPA).
Einstaklingar eru almennt sjúkratryggðir í búsetulandi sínu og eiga rétt á heilbrigðisþjónustu með sömu kjörum og aðrir íbúar.
Ef þú þiggur aðeins ellilífeyri eða eftirlaun sem veitt eru fyrir venjulegan eftirlaunaaldur frá öðru norrænu landi skaltu sækja um Evrópska sjúkratryggingakortið í landinu sem greiðir þér lífeyrir, þar sem það er það land sem greiðir heilbrigðisútgjöld tengd þér.
Ef þú færð hluta af elli- eða örorkulífeyri þínum frá norræna landinu sem þú býrð í getur þú sótt um Evrópska sjúkratryggingakortið frá búsetulandi þínu.
Hafðu samband við almannatryggingastofnanirnar til að fá upplýsingar um hvað á við um þínar aðstæður.
Ef þú þiggur t.a.m. atvinnuleysisdagpeninga eða fæðingarorlofsgreiðslur frá öðru landi en því sem þú býrð í er almenna reglan sú að þú eigir aðild að almannatryggingum í því landi sem innir greiðslurnar af hendi. Hafa ber samband við almannatryggingayfirvöld til að fá upplýsingar um þetta.
Ef par á aðild að almannatryggingum í tveimur löndum og annaðhvort á barn eða væntir barns gilda sérstakar reglur um barnabætur og fæðingarorlofsgreiðslur.
Hafðu samband við almannatryggingastofnanir í því landi sem þú býrð og starfar í ef þú ert í vafa um hvað á við í ykkar tilfelli.
Aðgengi að heilbrigðisþjónustu
Ef þú býrð í einu norrænu landi en vinnu í öðru áttu rétt á heilbrigðisþjónustu í búsetulandinu og í flestum tilfellum einnig í landinu sem þú starfar í.
Það sama getur í sumum tilvikum átt við ef þú færð lífeyri eða bætur frá öðru landi. Finna má nánari upplýsingar á síðum Info Norden um rétt til heilbrigðisþjónustu í norrænu löndunum.
Ef þú býrð eða starfar í ESB- eða EES-landi utan Norðurlanda (sem og Sviss eða Bretlands) gætur þú þurft að sækja um S1-skjal. Lesa má nánar um þetta á Your Europe.
Hvert er hægt að snúa sér með spurningar?
Nánari upplýsingar
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.