Dánarbætur til aðstandenda
Á Álandseyjum gildir finnska lífeyriskerfið og þær reglur sem gilda um dánarbætur. Aðstandandalífeyrir (efterlevandepension) er fjárhagsleg aðstoð við fráfall maka. Barnalífeyrir (barnpension) er fjárhagsleg aðstoð til barns ef foreldrar eða aðrir forsjárhafar falla frá. Aðstandandalífeyrir og barnalífeyrir teljast til dánarbóta og greiðast út af bæði FPA og atvinnulífeyrissjóðunum.
Nánari upplýsingar dánarbætur og finnska lífeyriskerfið fást á síðum Info Norden.
Nánari upplýsingar
Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um dánarbætur til aðstandenda í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.