Leiðbeiningar: sumarvinna eða árstíðavinna í Finnlandi
Hér eru upplýsingar um ýmislegt tengt tímabundinni vinnu í Finnlandi, svo sem um skattlagningu, starfskjör, atvinnuleysistryggingar og lífeyrismál.
Ef þú bæði starfar og býrð tímabundið í Finnlandi skaltu líka kynna þér efni síðunnar Leiðbeiningar: tímabundin dvöl í Finnlandi, þar sem finna má mikilvægar upplýsingar um skráningu í þjóðskrá, um húsnæðismál, almannatryggingar, bankareikninga, tryggingar og að skrá börn í dagvistun, forskóla eða grunnskóla í Finnlandi meðan á tímabundinni dvöl stendur.
Efni þessarar síðu er ætlað fólki sem ætlar að vinna tímabundið í Finnlandi. Ef þú ætlar að búa eða starfa í Finnlandi til lengri tíma finnur þú upplýsingar á síðunum Leiðbeiningar: að flytja til Finnlands og Leiðbeiningar: að starfa í Finnlandi.
Ef þú hyggst vinna fjarvinnu í Finnlandi eða fyrir finnskan vinnuveitanda skaltu kynna þér efni síðunnar Leiðbeiningar: fjarvinna í Finnlandi eða fyrir finnskan vinnuveitanda.
Ef þú kemur til Finnlands sem útsendur starfsmaður skaltu kynna þér efni síðunnar Útsendir starfsmenn frá Finnlandi og til Finnlands.
Atvinnuleit í Finnlandi
Á síðunni Atvinnuleit í Finnlandi finnur þú upplýsingar um atvinnuleit í Finnlandi.
Ef þú ert ríkisborgari norræns ríkis eða ESB-ríkis og á aldrinum 18–30 ára getur þú líka sótt um tímabundið starf í öðru norrænu landi gegnum Nordjobb. Nordjobb aðstoðar umsækjendur við húsnæðisleit og önnur praktísk mál og stendur einnig fyrir tómstunda- og menningardagskrá. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Nordjobb.
Skattar í Finnlandi
Þú þarft skattkort til að geta starfað í Finnlandi. Til að fá finnskt skattkort þarft þú finnska kennitölu, sem finnsk skattayfirvöld (Verohallinto) geta veitt þér ef þú þarft kennitölu til að geta starfað í Finnlandi. Til þess að fá finnska kennitölu og skattkort þarftu að mæta í eigin persónu í útibú skattsins.
Ef þú starfar fyrir finnskan vinnuveitanda í Finnlandi greiðirðu tekjuskatt þar í landi. Ef þú berð takmarkaða skattskyldu geturðu valið hvort þú greiðir staðgreiddan tekjuskatt eða stighækkandi skatt. Þú berð takmarkaða skattskyldu ef þú býrð í öðru landi og dvelur í Finnlandi í allt að sex mánuði.
Staðgreiddur tekjuskattur
Ef þú berð takmarkaða skattskyldu í Finnlandi greiðir þú yfirleitt 35 prósenta staðgreiddan tekjuskatt. Ef þú ert með skattkort fyrir staðgreiddan tekjuskatt getur vinnuveitandi þinn dregið frá tiltekna upphæð. Frádráttarupphæð staðgreidds tekjuskatts er 510 evrur á mánuði eða 17 evrur á dag.
Stighækkandi skattur
Stighækkandi skattur þýðir að skattprósenta ræðst af tekjum þínum. Ef þú ert með finnskt skattkort getur þú áætlað þá skattprósentu sem haldið er eftir af þínum tekjum með því að slá inn upplýsingar í reiknivél skattsins, sjá hér að neðan.
Ef stighækkandi skattur er tekinn af tekjum þínum í Finnlandi þarft þú að gefa upp skattskyldar tekjur þínar frá heimalandinu og einnig hvað búið er að draga frá. Mundu að námsstyrkur er talinn til tekna.
Í Finnlandi borgar þú aðeins skatt af tekjum sem aflað er í Finnlandi, en skattskyldar tekjur sem þú aflar í heimalandi þínu geta hækkað skattbyrði þína í Finnlandi.
Ef stighækkandi skattur er tekinn af tekjum þínum í Finnlandi færðu fyrir fram útfyllta skattaskýrslu árið eftir. Þar getur þú séð þær tekjur og frádrátt sem liggja til grundvallar skattlagningunni, auk lokaniðurstöðu. Þú þarft að fara vel yfir skattskýrsluna og hafa samband við skattayfirvöld ef þú hefur einhverjar athugasemdir eða leiðréttingartillögur.
Nánari uppýsingar um skattamál í Finnlandi eru á síðunni Skattar í Finnlandi.
Fjarvinna í Finnlandi fyrir erlendan vinnuveitanda
Ef þú vinnur fjarvinnu í Finnlandi fyrir erlendan vinnuveitanda á vinnuveitandinn að sjá til þess að þú hafir lögbundnar almannatryggingar í Finnlandi. Vinnuveitandinn getur líka veitt þér umboð til þess að kaupa lögbundnar tryggingar upp á eigin spýtur af finnsku tryggingafyrirtæki. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði finnsku lífeyristryggingamiðstöðvarinnar (Eläketurvakeskus).
Ef þú vilt eiga aðild að almannatryggingum í landi vinnuveitandans meðan þú starfar tímabundið í fjarvinnu í Finnlandi fyrir erlendan vinnuveitanda þarf vinnuveitandinn að sækja um A1-vottorð fyrir þig frá viðkomandi landi. A1-vottorð sýnir hvar þú átt aðild að almannatryggingum og í almannatryggingasjóð hvaða lands þú greiðir. Þú færð nánari upplýsingar hjá þeim yfirvöldum sem gefa út A-vottorð í landi vinnuveitandans.
Nánari upplýsingar eru á síðunni Leiðbeiningar: fjarvinna í Finnlandi eða fyrir finnskan vinnuveitanda.
Starfskjör og réttindi launafólks í Finnlandi
Ef þú starfar tímabundið í Finnlandi áttu rétt á sömu starfskjörum og innlendir starfsmenn hvað varðar laun, vinnutíma, starfsumhverfi og starfsöryggi. Nánari upplýsingar eru á síðunni Réttindi og skyldur launafólks í Finnlandi.
Upplýsingar um stéttarfélög í Finnlandi eru á síðunni Stéttarfélög í Finnlandi.
Atvinnuleysistryggingar í Finnlandi
Nánari upplýsingar um atvinnuleysistryggingar eru á síðunni Atvinnuleysisbætur í Finnlandi. Athugaðu að þú þarft að hafa atvinnuleysistryggingu í því landi sem þú starfar í.
Lífeyrismál í Finnlandi
Ef þú starfar í Finnlandi borgar þú líka lífeyrisgreiðslur og aflar þér lífeyrisréttinda þar. Lífeyrisréttindi er ekki hægt að flytja milli landa en hafir þú starfað í fleiri en einu ESB-landi gætir þú átt rétt á lífeyri frá öllum starfslöndunum.
Náir þú ekki að afla þér lífeyrisréttinda í Finnlandi eru starfstímabil þín í Finnlandi lögð saman og höfð til hliðsjónar þegar lífeyrir þinn frá heimalandinu er reiknaður út. Þetta er gert vegna meginreglu um að leggja skuli starfstímabil saman. Þegar þú sækir um ellilífeyri frá heimalandi þínu þarftu að láta vita af þeim tímabilum sem þú starfaðir í Finnlandi. Yfirvöld á hverjum stað halda ekki alltaf skrár yfir starfstímabil einstaklinga og því borgar sig að geyma launaseðla til að geta sýnt fram á vinnuna sem þú hefur unnið.
Nánari upplýsingar um finnska lífeyriskerfið eru á síðunni Lífeyriskerfið í Finnlandi.
Nánari upplýsingar
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.