Leiðbeiningar: Fjarvinna í Finnlandi eða fyrir finnskan vinnuveitanda

Ljósmyndari
Bruno Cervera on Unsplash
Sífellt algengara er að fólk vinni fjarvinnu í einu norrænu landi fyrir vinnuveitanda í öðru norrænu landi. Hér er farið yfir helstu atriði sem þú þarft að vita áður en þú byrjar að vinna fjarvinnu milli Finnlands og annars lands.

Með fjarvinnu er átt við vinnu sem sinnt er annars staðar en á formlegum vinnustað, til dæmis heima við, að frumkvæði starfsmannsins. Þó að Norðurlönd myndi saman eitt svæði er ýmislegt sem hafa þarf í huga þegar fólk sinnir fjarvinnu þvert á landamæri landanna, svo sem varðandi almannatryggingar og aðrar tryggingar, vinnuvernd og skattamál. Að auki geta skyldur vinnuveitenda verið mismunandi eftir löndum.

Þú skalt fullvissa þig um að vinnuveitandi þinn sé meðvitaður um þær skyldur sem fylgja því að hafa fólk í fjarvinnu og aðgæta að þú hafir öll nauðsynleg gögn og upplýsingar til reiðu áður en þú byrjar að vinna fjarvinnu i öðru landi.

Leiðbeiningarnar á þessari síðu eru fyrir fólk í fjarvinnu milli Finnlands og annars lands, hvort sem unnið er í fjarvinnu öðru hverju, tímabundið eða til lengri tíma. Ef þú ferð frá Finnlandi til að vinna í öðru norrænu landi að frumkvæði vinnuveitanda skaltu kynna þér efni síðunnar Útsendir starfsmenn frá Finnlandi og til Finnlands. Ef þú ert að koma til Finnlands til að vinna skaltu kynna þér efni leiðbeiningasíðunnar Að starfa í Finnlandi.

Gerðu skriflegan samning um starfsskilyrði í fjarvinnu

Gott er að gera skriflegt samkomulag við vinnuveitanda um fjarvinnu í öðru landi. 

Einnig er gott að semja við vinnuveitandann um vinnutíma fjarvinnunnar, um eftirfylgni með afköstum, tilhögun veikindadaga og gagnaöryggismál, auk þess að hafa á hreinu í hvaða landi stafsmaðurinn á aðild að almannatryggingum og hvernig deila skuli auknum kostnaði sem fjarvinnan getur haft í för með sér. Fyrirkomulag vinnu er breytilegt eftir störfum og því eru mismunandi atriði sem semja þarf um hverju sinni.

Almannatryggingar og aðrar tryggingar í fjarvinnu

Fjarvinna milli norrænna landa hefur áhrif á almannatryggingar starfsmannsins og það í hvaða landi vinnuveitandinn á að greiða vinnutengd gjöld. Finndu upplýsingar sem eiga við um þínar aðstæður hér fyrir neðan.

Fjarvinna í öðru landi fyrir finnskan vinnuveitanda

Ef þú býrð í Finnlandi og vinnur tímabundið fjarvinnu í öðru norrænu landi er ekki sjálfgefið að þú eigir aðild að finnskum almannatryggingum á meðan. Þú getur átt aðild að finnskum almannatryggingum áfram ef vinnuveitandi þinn hefur fengið A1-vottorð fyrir þig hjá finnsku lífeyristryggingamiðstöðinni (Eläketurvakeskus). Ef þú ert sjálfstætt starfandi eða styrkþegi þarftu sjálf/t/ur að sækja um A1-vottorð. Með A1-vottorði getur þú einnig fengið bætur frá almannatryggingastofnuninni Kela í Finnlandi.

Ef þú hefur ekki sótt um A1-vottorð eða uppfyllir ekki skilyrði til að fá slíkt vottorð getur þú ekki átt aðild að finnskum almannatryggingum meðan þú stundar fjarvinnu í öðru norrænu landi. 

Ef þú ætlar að stunda fjarvinnu í öðru landi til lengri tíma getur þú heldur ekki átt aðild að finnskum almannatryggingum og þarft að sækja um aðild að slíkum tryggingum í starfslandinu.

Þú þarft líka A1-vottoð ef þú starfar að hluta til í Finnlandi og að hluta í öðru norrænu landi, til dæmis á formi fjarvinnu í einu landi og staðvinnu í öðru landi. Ef þú vinnur í tveimur eða fleiri löndum fyrir einn og sama vinnuveitanda á vinnuveitandinn að sækja um A1-vottorð fyrir þig. Hafir þú fleiri en einn vinnuveitanda getur þú sótt um vottorðið sjálf/t/ur. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði finnsku lífeyristryggingamiðstöðvarinnar (Eläketurvakeskus).

Fjarvinna í Finnlandi fyrir erlendan vinnuveitanda

Ef þú vinnur einungis í Finnlandi átt þú alla jafna aðild að finnskum almannatryggingum á grundvelli almannatryggingareglugerða ESB. Þá á erlendur vinnuveitandi þinn að greiða almannatryggingagjöld til Finnlands og þú nýtur réttinda í Finnlandi í samræmi við það. 

Undantekningar frá þessu eru embættismenn í fjarvinnu og útsendir starfsmenn sem vinna tímabundið í Finnlandi og hafa A1-vottorð frá brottfararlandinu. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði finnsku lífeyristryggingamiðstöðvarinnar (Eläketurvakeskus).

Tryggingar milli landa

Mikilvægt er að þú gangir úr skugga um að tryggingar vinnuveitanda þíns nái yfir fjarvinnu í öðru landi. 

Vinnuslysatrygging finnsks vinnuveitanda gildir um allan heim en ekki er víst að öll slys og veikindi sem verða í fjarvinnu heyri undir skilmála vinnuslysatryggingarinnar.

Algengt er að vinnuferðatrygging nái ekki yfir vinnu í öðru landi til lengri tíma og þá getur verið að þú sem starfsmaður þurfir að tryggja þig sérstaklega eða gera aðrar ráðstafanir.

Heilbrigðisþjónusta erlendis

Ef þú vinnur fjarvinnu í öðru landi fyrir finnskan vinnuveitanda er vinnuveitandanum ekki skylt að sjá þér fyrir vinnutengdri heilbrigðisþjónustu í öðru landi. Margs konar vinnutengda heilbrigðisþjónustu má þó nýta sér með rafrænum hætti milli landa og því getur þú samið við vinnuveitenda þinn um það sem á að falla undir samning þinn um vinnutengda heilbrigðisþjónustu.

Auk vinnutengdrar heilbrigðisþjónustu skaltu líka kynna þér rétt þinn til annars konar heilbrigðiþjónustu. Nánari upplýsingar eru á síðum um rétt til heilbrigðisþjónustu í mismunandi löndum.

Vinnuvernd, starfsumgjörð og skyldur

Ekki er kveðið sérstaklega á um fjarvinnu í finnskum lögum, en lög um ráðningarsamninga, vinnutíma og vinnuvernd ná einnig yfir fjarvinnu. Þessi lög eru lagalegur grundvöllur allrar vinnu í Finnlandi, einnig ef þú býrð í Finnlandi en stundar fjarvinnu í öðru landi.

Vinnuvernd í öðru landi

Vinnuveitanda þínum er skylt að tryggja öryggi þitt, einnig á meðan þú vinnur í öðru landi. Ýmsar áskoranir geta fylgt því að tryggja vinnuvernd í öðru landi en mikilvægt er að semja fyrirfram við vinnuveitandann um eftirfarandi atriði, sem dæmi:

  • vinnutíma og eftirlit með honum
  • afköst og markmið og eftirfylgni þeirra
  • tilhögun veikindadaga
  • gagnaöryggismál
  • vinnuvernd og eftirlit með álagi

Nánari upplýsingar eru á vefsvæði finnsku vinnuverndarstofnunarinnar.

Vinnutæki og búnaður

Vert er að nefna að vinnuveitanda ber ekki skylda til að sjá starfsmanni fyrir vinnutækjum eða búnaði til fjarvinnu ef sá vinnustaður sem tiltekinn er í ráðningarsamningi er ætlaður til staðvinnu. Þú skalt semja við vinnuveitanda þinn um starfskjör og skiptingu mögulegs aukakostnaðar áður en þú byrjar að stunda fjarvinnu.

Skattlagning fjarvinnu

Skattamálin geta orðið flókin ef þú sinnir fjarvinnu í öðru landi. Skattareglur eru mismunandi milli landa og mikilvægt er að þú hafir á hreinu í hvaða landi þú átt að greiða tekjuskatt. Nánari upplýsingar eru á síðunni Skattar í Finnlandi.

Takmarkanir á fjarvinnu

Hugsanlegt er að vinnuveitandi setji því takmörk hve mikla fjarvinnu þú mátt vinna og hvar. Vert er að athuga að ekki samþykkja allir vinnuveitendur fjarvinnu í öðru landi, þótt þeir fallist á að fjarvinnu sé sinnt innan sama lands. Ástæðurnar geta verið aukinn kostnaður, óvissa varðandi skyldur starfsmanns og vinnuveitanda eða að vinnuveitandinn uppfylli ekki lagaleg skilyrði til að hafa starfsfólk í fjarvinnu.

Kynntu þér rétt þinn til að stunda fjarvinnu milli landa áður en þú byrjar að vinna fjarvinnu.

Skilgreining á fastri starfsstöð

Ef starfsmaður vinnur fjarvinnu frá öðru norrænu landi er mikilvægt að vinnuveitandinn fái úr því skorið hvort hann hafi þar með komið upp fastri starfsstöð í viðkomandi landi. Skilgreiningin á fastri starfsstöð veltur á ýmsum þáttum, svo sem lengd starfstímabils og eðli vinnunnar.

Ef starfsmaður í fjarvinnu tekur til dæmis ákvarðanir fyrir hönd fyrirtækisins eða vinnur í öðru landi til lengri tíma getur það þýtt að vinnuveitandinn sé kominn með fasta starfsstöð í því landi. Þá þarf vinnuveitandinn að greiða skatt í landinu, sinna bókhaldi og skýrslugerð þar og mögulega greiða virðisaukaskatt. 

Nánari upplýsingar um skilgreiningu á fastri starfsstöð er að finna í norræna tvísköttunarsamningnum.

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.