Leiðbeiningar: Tímabundin dvöl í Finnlandi
Hér eru meðal annars upplýsingar um skráningu í þjóðskrá, um húsnæðismál, almannatryggingar, bankareikninga, tryggingar og að skrá börn í dagvistun, forskóla eða grunnskóla í Finnlandi á meðan þú dvelur þar eða starfar tímabundið.
Á síðunni Leiðbeiningar: sumarvinna eða árstíðavinna í Finnlandi finnur þú upplýsingar um mál sem varða tímabundin störf, svo sem skattlagningu, starfskjör, atvinnuleysistrygFinnlandi gingar og lífeyrismál í Finnlandi.
Ef þú ætlar að flytja til Finnlands til lengri tíma finnur þú upplýsingar á síðunni Leiðbeiningar: Að flytja til Finnlands.
Skráning í þjóðskrá í Finnlandi
Ef þú ert ríkisborgari norræns lands þarftu ekki dvalarleyfi til að mega búa í Finnlandi. Þú getur dvalið í Finnlandi í sex mánuði í mesta lagi án þess að þurfa að skrá þig í þjóðskrá landsins. Þú getur þó tilkynnt tímabundinn flutning ef þú vilt. Nánari upplýsingar eru á síðunni Skráning í þjóðskrá í Finnlandi.
Mundu að láta póstinn og yfirvöld í brottfararlandinu vita af nýja heimilisfanginu þínu í Finnlandi.
Kennitala í Finnlandi
Þú getur fengið finnska kennitölu þótt þú dveljir aðeins tímabundið í landinu. Það er þó skilyrði að dvöl þín í Finnlandi sé lögleg og að rök séu fyrir því að skrá þig í finnsku þjóðskrána. Slík rök geta verið nám eða vinna í Finnlandi eða önnur sambærileg ástæða. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði finnsku stofnunarinnar um stafræna væðingu og lýðfræðigögn (DVV).
Til að fá kennitölu þarftu að mæta í eigin persónu í útibú finnsku stofnunarinnar um stafræna væðingu og lýðfræðigögn (DVV), útibú skattsins eða til finnsku stofnunarinnar um málefni innflytjenda (Maahanmuttovirasto til að staðfesta dvalarrétt eða dvalarleyfi í landinu.
Nánari upplýsingar um finnskar kennitölur eru á síðunni Kennitala í Finnlandi.
Rafræn auðkenning í Finnlandi
Til að sinna erindum og viðskiptum á netinu þarft þú rafræna auðkenningarleið. Þú þarft að hafa finnska kennitölu til að geta fengið rafrænt auðkenni í Finnlandi. Ef þú getur ekki fengið rafrænt auðkenni í Finnlandi getur þú notað auðkenningarþjónustuna Finnish Authenticator. Nánari upplýsingar eru á síðunni Rafræn auðkenning í Finnlandi.
Ef þú hefur eIDAS-auðkenni sem samþykkt er af öðru landi innan ESB getur þú notað það til rafrænnar auðkenningar í Finnlandi. Á síðunni Suomi.fi finnur þú lista yfir lönd hverra auðkenningarleiðir er hægt að nota í Finnlandi. Athugaðu þó að þjónustuframboðið sem þér býðst með erlendum auðkennum í Finnlandi er mun minna en það sem þú færð með finnsku auðkenni.
Ef þú vilt fá finnskt netbankaauðkenni þegar þú opnar bankareikning í landinu þarft þú að skrá persónuupplýsingar þínar og heimilisfang í gagnagrunn finnsku stofnunarinnar um stafræna væðingu og lýðfræðigögn (DVV)., Nánari upplýsingar eru á vefsvæði DVV.
Húsnæðismál í Finnlandi
Upplýsingar um búsetu í Finnlandi eru á síðunni Búseta í Finnlandi.
Til að geta fengið finnskan húsnæðisstyrk þarft þú að hafa fasta búsetu í Finnlandi. Það þýðir að ef búseta þín í Finnlandi er ekki álitin föst búseta átt þú ekki rétt á húsnæðisstyrk frá finnska ríkinu. Nánari upplýsingar um almannatryggingar á grundvelli búsetu eru í finnskum lögum almannatryggingar á grundvelli búsetu í tilvikum sem varða fleiri en eitt land.
Leigusali getur sett það sem skilyrði fyrir leigusamningi að þú hafir finnska kennitölu. Spurðu tilvonandi leigusala hvaða upplýsingar hann þarf til að geta gert leigusamning við þig. Nánari upplýsingar um leigusamninga eru á InfoFinland.fi.
Finnskir leigusalar gera yfirleitt kröfu um að leigjendur kaupi heimilistryggingu fyrir leiguhúsnæðið. Nánari upplýsingar eru hér fyrir neðan undir yfirskriftinni Tryggingar í Finnlandi.
Almannatryggingar í Finnlandi
Mikilvægt er að vita hvar þú átt þú aðild að almannatryggingum. Ef þú veist ekki í hvaða landi þú átt aðild að almannatryggingum skaltu kynna þér efni síðunnar Hvar átt þú aðild að almannatryggingum? Upplýsingar um almannatryggingar í Finnlandi eru á síðunni Almannatryggingar í Finnlandi fyrir fólk sem býr þar eða starfar.
Ef þú þiggur einhverjar bætur frá almannatryggingum í landinu sem þú kemur frá skaltu athuga áður en þú kemur til Finnlands hvort þú getir fengið bæturnar á meðan þú dvelur í útlöndum. Mundu líka að láta félagsmálayfirvöld í landinu vita af tímabundinni dvöl þinni í Finnlandi og gera þeim viðvart þegar þú kemur aftur þaðan.
Réttur til heilbrigðisþjónustu í Finnlandi
Upplýsingar um rétt þinn til heilbrigðisþjónustu í Finnlandi eru á síðunni Réttur til heilbrigðisþjónustu í Finnlandi.
Bankareikningur í Finnlandi
Ekki er nauðsynlegt að hafa finnska kennitölu til að opna bankareikning í Finnlandi en þú verður þó að geta sannað deili á þér með áreiðanlegum hætti. Best er að framvísa gildu vegabréfi eða nafnskírteini sem gefið er út af yfirvöldum í þínu landi. Til að opna bankareikning þarft þú að mæta í bankaútibú í eigin persónu með skilríkin meðferðis.
Þegar þú opnar bankareikning getur bankinn athugað lánstruast þitt og óskað eftir útskýringum á því til hvers þú ætlir að nota reikninginn.
Nánari upplýsingar um bankareikning í Finnlandi eru á síðunni Bankareikningur í Finnlandi.
Tryggingar í Finnlandi
Heimilistrygging er oft skilyrði fyrir því að leigja húsnæði. Þú getur keypt heimilistryggingu í Finnlandi þótt þú búir þar aðeins tímabundið. Upplýsingar um tryggingar í Finnlandi eru á síðunni Tryggingar í Finnlandi.
Ef þú ert með tryggingar í heimalandi þínu skaltu hafa samband við tryggingafélagið og athuga hvaða áhrif dvöl erlendis hefur á tryggingarnar þínar.
Farsímaþjónusta í Finnlandi
Upplýsingar um farsímaþjónustu í Finnlandi eru á síðunni Kaup á vöru og þjónustu í Finnlandi.
Ökutæki og ökuréttindi í Finnlandi
Á síðunum Ökutæki í Finnlandi og Ökuréttindi í Finnlandi finnur þú upplýsingar um að nota ökutæki sem skráð er erlendis í Finnlandi, og um rétt þinn til að keyra í Finnlandi út á ökuréttindi frá öðru landi.
Gæludýr í Finnlandi
Á síðunni Að ferðast með hund eða kött til Finnlands finnur þú upplýsingar um að flytja gæludýr til Finnlands.
Þarf ég vegabréf til að ferðast til Finnlands?
Á síðunni Þarf ég vegabréf til að ferðast til Finnlands? finnur þú upplýsingar um þau ferðaskilríki sem þú þarft til að ferðast til Finnlands.
Að skrá börn í dagvistun, forskóla eða grunnskóla í Finnlandi
Í Finnlandi ber sveitarfélögum að bjóða dagvistun þeim börnum sem eiga lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi samkvæmt finnskum lögum um sveitarfélög. Einnig ef barnið býr í sveitarfélaginu vegna vinnu, náms eða veikinda forsjáraðila, eða af öðrum sambærilegum ástæðum, þó að barnið eigi ekki lögheimili í Finnlandi eða þótt það teljist búa í öðru sveitarfélagi samkvæmt lögunum um sveitarfélög. Sveitarfélögum ber einnig að sjá börnum sem dvelja utan sveitarfélagsins fyrir dagvistun ef neyðarástand kemur upp eða aðstæður krefjast þess að öðru leyti. Nánari upplýsingar eru í finnskum lögum um dagvistun ungra barna.
Sveitarfélögum ber skylda til að sjá börnum sem búa í viðkomandi sveitarfélagi og eru á námsskyldualdri fyrir forskóla- og grunnskólanámi. Skilyrði er að barnið teljist hafa þar fasta búsetu í vissum skilningi, en þó er ekki hægt að krefjast þess í öllum tilvikum að börn hafi fast heimilisfang eða séu skráð í gagnagrunn þjóðskrár í Finnlandi. Ef vafaatriði koma upp er hvert tilvik metið fyrir sig. Nánari upplýsingar eru í finnsku grunnskólalögunum.
Mismunandi sveitarfélög geta haft mismunandi kerfi til að skrá börn í leikskóla, forskóla eða grunnskóla. Nánari upplýsingar færðu hjá þínu búsetusveitarfélagi í Finnlandi.
Nánari upplýsingar um dagvistun, forskólanám og grunnskólanám eru á síðunum Dagvistun ungra barna í Finnlandi, Forskólanám í Finnlandi og Grunnskólanám í Finnlandi.
Nánari upplýsingar
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.