Leiðbeiningar: Upplýsingar fyrir eldra fólk sem vill flytja til Danmerkur
Flutt til Danmerkur frá öðru norrænu landi
Ef þú ert ríkisborgari í öðru norrænu landi er þér frjálst að flytja til Danmerkur. Þú þarft ekki dvalarleyfi. Fyrir ríkisborgara annarra landa gilda aðrar reglur.
Ef þú flyst varanlega til Danmerkur þarftu að skrá þig í þjóðskrá þar og skrá brottflutning í landinu sem þú flytur frá. Það er að mörgu öðru að huga þegar flutt er, hvort sem þú ert ellilífeyrisþegi eða ekki. Það geturðu kynnt þér í leiðbeiningum Info Norden um flutninga til Danmerkur.
Húsnæði og húsnæðisstyrkur í Danmörku
Hvernig finnurðu húsnæði í Danmörku?
Almennar upplýsingar um húsnæðisleit í Danmörku má finna í grein Info Norden um húsnæði í Danmörku. Á borger.dk má finna upplýsingar um íbúðir fyrir eldri borgara í Danmörku.
Áttu rétt á húsnæðisbótum í Danmörku?
Ef þú býrð í Danmörku geturðu sótt um húsnæðisbætur. Réttur þinn til bóta, og þá hversu hárra, fer meðal annars eftir:
- tekjum heimilisins
- eignum heimilisins
- fjölda barna og fullorðinna sem búa í húsnæðinu
- upphæð húsaleigu
- stærð húsnæðisins í fermetrum
- hvort þú sért ellilífeyris- eða fyrirframlífeyrisþegi.
Nánari upplýsingar á borger.dk.
Hvernig er sótt um heimilishjálp eða umönnun á heimilinu í Danmörku?
Lífeyrisþegar sem þurfa aðstoð við daglegar athafnir geta sótt um heimilishjálp eða hjálpartæki hjá sveitarfélaginu.
Þú getur fengið heimilishjálp ef þú hefur fötlun eða hefur átt við veikindi að stríða og býrð því ekki lengur yfir sömu líkamlegu eða andlegu færni og áður. Sveitarfélagið metur þörf þína á hjálp og tekur ákvörðun um hana út frá því.
Þú getur fengið hjálp við:
- persónuleg umhirðu
- heimilisverk
Þú getur sótt um varanlega, tímabundna eða tilfallandi aðstoð hjá sveitarfélaginu. Þú getur fengið hjálp hvort sem þú býrð ein eða einn, í eigin húsnæði, í búsetuíbúð, hjúkrunaríbúð eða annars konar húsnæði.
Ef þú eða barnið þitt er með líkamlega eða andlega fötlun sem hjálpartæki geta auðveldað geturðu leitað til sveitarfélagsins eftir hjálpartæki eða styrk til að kaupa það.
Sveitarfélagið getur veitt styrki vegna hjálpartækja, sérstakra vara og breytinga eða skipta á húsnæði ef þú býrð við varanlega líkamlega eða andlega fötlun. Markmiðið er að þú getir lifað eins eðlilegu og sjálfstæðu lífi og hægt er þrátt fyrir fötlunina.
Ef þú færð hjálpartækjastyrk í öðru norrænu landi og hyggst flytja til Danmerkur þarftu að hafa samband við yfirvöld í landinu sem þú flytur frá til að grennslast fyrir um hvort þú getir tekið hjálpartækin með til Danmerkur.
Nánari upplýsingar um heimilishjálp eru á vefnum borger.dk. Nánari upplýsingar um hjálpartæki eru í grein Info Norden um hjálpartæki í Danmörku.
Er hægt að flytja til Danmerkur ef maður þarf langvarandi meðferð eða umönnun?
Ef þú þarft langvarandi meðferð eða umönnun og vilt flytja frá einu norrænu landi til annars norræns lands sem þú hefur sérstök tengsl við eiga viðkomandi yfirvöld í löndunum tveimur að leitast við að styðja við slíkan flutning ef hann bætir lífsgæði þín.
Hafðu samband við sveitarfélagið sem þú flyst frá og sveitarfélagið sem þú vilt flytja til í Danmörku til að fá nánari upplýsingar.
Félags- og heilsufarstryggingar í Danmörku
Almannatryggingakerfi hvaða lands tilheyrir þú?
Ef þú býrð í Danmörku og hefur ekki aðrar tekjur en lífeyrisgreiðslur er meginreglan sú að þú njótir danskra almannatrygginga.
Hvar áttu að sækja um bláa ESB-sjúkratryggingaskírteinið?
Meginreglan er sú að þú sækir um bláa ESB-sjúkratryggingaskírteinið í landinu sem greiðir þér lífeyri. Ef þú færð lífeyrisgreiðslur frá fleiri en einu landi þarftu að hafa samband við Udbetaling Danmark.
Áttu rétt á heilbrigðisþjónustu í Danmörku?
Þegar þú flytur til Danmerkur frá öðru Norrænu landi áttu alla jafna að skrá þig í þjóðskrá í því sveitarfélagi sem þú hyggst búa í. Þá færðu danskt sjúkratryggingaskírteini. Skírteinið er sent á danska heimilisfangið þitt. Skírteinið sannar að þú hafir aðgang að allri heilbrigðisþjónustu í Danmörku. Þú þarft að framvísa skírteininu í hvert sinn sem þú hefur samskipti við heilbrigðiskerfið.
Þegar þú flytur til Danmerkur eða hefur störf í landinu þarftu að veita Udbetaling Danmark upplýsingar um sjúkratryggingastöðu þína. Udbetaling Danmark þarf upplýsingarnar til þess að meta hvort Danmörk eða annað land eigi að standa straum af kostnaði við sjúkratryggingar þínar.
Nánari upplýsingar um danska heilbrigðiskerfið er að finna á síðu Info Norden um rétt til heilbrigðisþjónustu í Danmörku.
Geturðu flutt lífeyrisgreiðslur með þér til Danmerkur?
Reglurnar í landinu sem greiðir þér lífeyri segja til um það hvort þú getir flutt lífeyrisgreiðslur með þér til útlanda og þá að hve miklu leyti. Þú þarft því að hafa samband yfirvöld lífeyrismála í landinu eða löndunum sem þú færð lífeyrisgreiðslur frá til að fá upplýsingar um hvaða á við í þínu tilviki.
Hvernig eru lífeyrisgreiðslur skattlagðar í Danmörku?
Ef þú býrð í norrænu landi og færð lífeyrisgreiðslur frá öðru norrænu landi þarftu að gefa upp greiðslurnar í báðum löndum. Þú greiðir skatt í landinu sem greiðir lífeyrinn. Þú greiðir einnig skatt af lífeyrinum í landinu sem þú býrð í en þar lækkar skatturinn um upphæð sem nemur því sem þú greiðir í skatt í landinu sem greiðir lífeyrinn út. Þú getur lesið meira á Nordisk eTax-vefgáttinni sem rekin er í samstarfi skattyfirvalda á Norðurlöndunum.
Afslættir fyrir eldri borgara í Danmörku
Ef þú ert eldri en 67 ára færðu afslátt af fargjöldum og kortum þegar þú ferðast með almenningssamgöngum í Danmörku.
Eldri borgarar og lífeyrisþegar njóta einnig margs konar annars afsláttar í Danmörku en þeim er ekki haldið saman á einum stað. Mörg einkafyrirtæki bjóða eldri borgurum sérkjör. Afslættir eru mismunandi eftir aðilum og geta náð til alls frá menningarþjónustu, afþreyingu og tryggingum til aðildar að félagasamtökum og afsláttar í matvöruverslunum.
Nánari upplýsingar
Einnig má leita ráða hjá Ældre Sagen, sem eru dönsk hagsmunasamtök sem vinna að bættum kjörum eldri borgara.
Þá má leita til Info Norden með því að fylla út spurningaeyðublað okkar ef spurningar vakna eða ef þú rekst á hindranir í tengslum við flutningana. Ef þú hefur spurningar varðar meðhöndlun tiltekins máls, umsóknar eða persónulegra aðstæðna skaltu hafa samband við viðeigandi yfirvöld.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.