Réttindi neytenda á Álandseyjum

Hér finnur þú upplýsingar um neytendavernd á Álandseyjum og ráðgjöf vegna ágreinings. Á þessari síðu eru einnig gefnar upplýsingar um lánshæfismat, ríkisfjölmiðla og viðeigandi fjölmiðlagjöld og hvað þarf til að fá aðgang að rafmagni, síma og interneti.

Á Álandseyjum gilda sömu lög um neytendavernd í Finnlandi. Hins vegar er það stofnun umboðsmanns á Álandseyjum sem sér um neytendaráðgjöf en ekki samkeppnismála- og neytendastofa (Konkurrens- och konsumentverket). Lesa má lög um neytendavernd í heild sinni á vefsvæði Finlex.

Neytendaráðgjöf

Neytendaráðgjöf umboðsmanns Álandseyja býður bæði neytendum og fyrirtækjum upp á ókeypis ráðgjöf og leiðsögn. Hún veitir upplýsingar um réttindi og skyldur og hjálpar til við að miðla málum komi upp ágreiningur. Auk þess veitir neytendaráðgjöfin ráðgjöf um vandamál í tengslum við húsnæðis- og fasteignakaup og leigumál, þar sem Álandseyjar eru með eigin húsaleigulög. Ef ekki tekst að leysa úr ágreiningi með sáttamiðlun er hægt að vísa málinu til úrskurðarnefndar neytendamála.

Nánari upplýsingar um neytendaráðgjöf er að finna á vefsíðu umboðsmanns Álandseyja. Á síðunni um neytendaráðgjöf má finna upplýsingar hvað þarf að hafa í huga áður en kvörtun er send inn og hvernig það er gert.

Upplýsingar um lánshæfi

Í Finnlandi og á Álandseyjum er notast við skrá yfir gott lánshæfi sem inniheldur meðal annars upplýsingar um lán, tekjur og sjálfviljugt lánabann einstaklinga og sjálfstætt starfandi atvinnurekenda. Upplýsingar um laun, lífeyri og bætur eru sóttar úr tekjuskrá og lánaveitendur sem tilkynna veitt húsnæðislán, bílalán námslán, neyslulán o.fl. til skráarinnar.

Tilgangur skráarinnar er að gefa lánaveitendum betri grundvöll til að meta lánshæfi og minnka hættu á of mikilli skuldsetningu. Skráin er „jákvæð“ því hún inniheldur ekki svonefndar neikvæðar lánshæfisupplýsingar, svo sem um vanskil eða fjárnám. 

Á Norðurlöndum sjá einkafyrirtæki um að veita lánshæfisupplýsingar. Ef reikningar eða skuldir eru ekki greiddar getur einstaklingur verið skráður á vanskilaskrá. Með samstarfssamningum milli fyrirtækja geta vanskil sem skráð eru í Finnlandi í sumum tilfellum einnig verið athuguð í öðrum norrænum löndum. Vanskil eru yfirleitt á skrá í tvö til þrjú ár. Nánari upplýsingar fást á vef samkeppnismála- og neytendastofu (Konkurrens- och konsumentverket). 

Ríkisfjölmiðlar

Ríkisfjölmiðlar eiga að veita íbúum aðgang að óhlutdrægum og fjölbreyttum upplýsingum sem eru frjálsar og óháðar bæði pólitískum og viðskiptalegum öflum. Á Álandseyjum er það Ålands Radio och Tv (ÅRTV) sem hefur lögbundið hlutverk fjölmiðils í almannaþjónustu. Auk þess ber ÅRTV ábyrgð á að tilkynna almenningi að beiðni almannavarna um aðstæður sem kunna að vera hættulegar. ÅRTV býður upp á bæði sænskar og finnskar útvarps- og sjónvarpsrásir. Upplýsingar um úrvalið er að finna á vefsíðu ÅRTV og á vefsíðunni Frekvenser.

Fjölmiðlagjöld

Til að fjármagna ríkisfjölmiðla greiðist árlegt fjölmiðlagjald tengt tekjuskatti. Fjölmiðlagjald er greitt af hverjum einstaklingi sem er eldri en 18 ára hjá sveitarfélagi sem er búsett á Álandseyjum og hefur tekjur sem eru hærri en 14.000 evrur. Fjölmiðlagjaldið er bundið vísitölu framfærslukostnaðar og hvert haust ákveður landsstjórn Álandseyja fjölmiðlagjald fyrir næsta skattár. Ef þú vilt lesa meira um fjölmiðlagjaldið og núverandi upphæð þess geturðu gert það á vefsíðu skattyfirvalda.

Áskriftir, samningar og þjónustur

Á Álandseyjum kann að vera gerð krafa um finnska kennitölu til að gera samning um þjónustu eins og símaáskrift. Hafðu samband við viðkomandi þjónustuaðila til að komast að því hvers er krafist í þínum aðstæðum. Finna má nánari upplýsingar um kennitölur í Finnlandi á síðu Info Norden.

Bankaþjónusta

Bankar eru skyldugir til að veita öllum viðskiptavinum með lagalega búsetu í Finnlandi og á Álandseyjum grunnþjónustu. Á meðal grunnbankaþjónustu eru t.d. almennur greiðslureikningur og tengdir greiðslumátar, s.s. greiðslukort og netbankakóðar, úttektir í reiðufé, framkvæmd greiðslna og rafrænt auðkenningartæki. 

Bankar mega ekki hafna umsókn þinni um bankareikning af þeirri ástæðu einni að þú búir ekki í landinu. Hins á þessi réttur ekki við um allar tegundir reikninga, svo sem sparnaðarreikninga. Nánari upplýsingar um bankaþjónustu Álandseyja er að finna á síðunni „Bankareikningur á Álandseyjum“.

Sjónvarp, internet og sími

Það fer eftir þjónustuaðilum hvort finnskur kennitala sé nauðsynleg til að fá símaáskrift með mánaðargjaldi eða samning um nettengingu. Ef þú ert ekki með finnska kennitölu geturðu þess í stað valið fyrirframgreidda áskrift, sem stundum er nefnd inneignarkort (kontantkort).

Á heimilum Álandseyja er IPTV algengasta lausnin fyrir sjónvarp. IPTV krefst fastrar nettengingar. Leigjendur greiða oft sjálfir fyrir IPTV nema annað komi fram í leigusamningi.

Nokkrir þjónustuaðilar bjóða upp á net- og ljósleiðaraáskrift, síma og IPTV á Álandseyjum. Á upplýsingavefnum aland.com má finna yfirlit yfir fyrirtæki sem bjóða þessa og aðra þjónustu.

Rafmagnsveitusamningur

Íbúar gera yfirleitt sjálfir rafmagnsveitusamning ef ekki er samið um annað við leigusalann eða búsetufyrirtækið. Hægt er að gera rafmagnsveitusamning án þess að vera með finnska kennitölu, en rafmagnsveitan kann að krefjast annarra upplýsinga, svo sem vegabréfsnúmers. Við flutning fæst ekki sjálfkrafa tenging við rafmagn eða rafmagnsveitusamningur, því tilkynna þarf um flutning til rafmagnsveitunnar. 

Á Álandseyjum eru tvær rafmagnsveitur sem hægt er að semja við eftir því hvort þú býrð í dreifbýli, skerjagarðinum eða í Maríuhöfn. Nánari upplýsingar fást á vefsíðum rafmagnsveitnanna.

Nánari upplýsingar

Á síðu Info Norden má finna upplýsingar um réttindi neytenda í öðrum norrænum löndum og samskiptaupplýsingar þeirra stofnana sem geta svarað spurningum.

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.