Fullkomlega heilum matvælum hent – Norðurlandaráð vill breyta ábyrgð verslana
Í dag er merkingin „best fyrir“ notuð á fjölda matvara. Merkingin þýðir að áferð eða bragð vörunnar kunni að breytast eftir að dagsetningin er liðin en hún sé þó enn neysluhæf. Hugmyndin er að neytandinn skeri sjálfur úr um hvort hægt sé að neyta vörunnar.
Það er því leyfilegt að selja vörur sem komnar eru fram yfir „best fyrir“-dagsetninguna en í dag er gert ráð fyrir því að starfsfólk matvöruverslana dæmi um hvort vörur séu neysluhæfar, nokkuð sem oft er ómögulegt er að skera úr um án þess að taka þær úr umbúðum sínum. Þetta leiðir til þess að fullkomlega neysluhæfum matvælum er hent að óþörfu.
Að sögn Karinar Gaardsted, sem á sæti í norrænu sjálfbærninefndinni, eru góð tækifæri til staðar á Norðurlöndum til að draga úr matarsóun í verslunum:
„Hér á Norðurlöndum höfum við bæði þekkinguna og getuna til að ganga á undan og sýna heiminum að það séu til lausnir. Það byrjar með því að við breytum því hvernig við lítum á dagsetningarmerkingar og ábyrgð verslananna.“
Norðurlandaráð vill breyta reglum um dagsetningarmerkingar
Norðurlandaráð hefur því samþykkt nýja tillögu sem miðar að því að draga úr matarsóun í smásölu. Til að koma í veg fyrir að verslanir hendi vörum að óþörfu er lagt til að það verði á ábyrgð neytenda að meta hvort óhætt sé að neyta vöru þegar „best fyrir“dagsetningin er liðin. Jafnframt er lagt til að verslanir lækki verð á slíkum vörum um tiltekna lágmarksprósentu.
„Með því að innleiða þessar breytingar viljum við auðvelda almenningi á Norðurlöndum að neyta með sjálfbærum hætti og um leið stuðla að því að ná markmiði Sameinuðu þjóðanna um að helminga matarsóun fyrir árið 2030,“ segir Karin Gaardsted.
Tillagan var fyrst tekin fyrir hjá norrænu sjálfbærninefndinni og hefur hefur nú verið samþykkt af Norðurlandaráði. Tillagan hefur verið send til norrænu ríkisstjórnanna til frekari umfjöllunar og Norðurlandaráð bíður nú eftir svari ríkisstjórnanna.
Matarsóun er eitt af helstu áherslumálum norrænu sjálfbærninefndarinnar árið 2025. Hér má lesa nánar um vinnuna gegn matarsóun: