Fyrir COP30: Norrænir loftslags- og umhverfisráðherrar undirrita yfirlýsingu um nauðsyn fjölþjóðasamvinnu
Frá vinstri: Magnus Heunicke, Camilla Gunell, Margit Stórá, Sari Multala, Andreas Bjelland Eriksen og Romina Pourmokhtari.
Umræður um alþjóðlegt samstarf voru ráðandi á fundi norrænna loftslags- og umhverfisráðherra í Stokkhólmi í dag. Á dagskrá voru loftslagsviðræðurnar í Belém í Brasilíu sem standa fyrir dyrum, plastviðræðurnar í Genf í ágúst síðastliðnum og umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna í Nairobi (UNEA7) í desember.
Á þessum grunni staðfestu ráðherrarnir í sameiginlegri yfirlýsingu þátttöku sína í fjölþjóðasamvinnu og alþjóðlegu kerfi byggðu á reglum sem grundvöll að lausn hnattrænna umverfisógna.
„Vernd umhverfis okkar og stöðugleiki loftslagsstefnu er algerlega háð alþjóðlegri samstöðu okkar. Um leið lifum við á tímum þar sem fjölþjóðasamvinna er undir meiri þrýstingi en nokkru sinni fyrr. Því er mikilvægt að leggja áherslu þetta í félagi við norræna kollega mína í sameiginlegri yfirlýsingu,“ segir Sari Multala, loftslags- og umhverfisráðherra Finnlands.
„Ríkisstjórnir Norðurlandanna leggja allar ríka áherslu á að efla alþjóðlegt kerfi byggt á reglum og styrkja samstarf fjölþjóðlegra samtaka og stofnana, þar með talið Sameinuðu þjóðirnar. Ég er stolt af því að Norræna ráðherranefndin leggur af mörkum mikilvægan stuðning við vinnu landanna að þessum mikilvægu alþjóðlegu ferlum,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Skilvirk fjölþjóðasamvinna tryggir að enginn verði útundan í umskiptunum og eykur traust, jafnrétti og sameiginlega ábyrgð í alþjóðlegri umhverfisstjórnun.
COP30 i Belém og sameiginleg norræn kynning
Í yfirlýsingunni er bent á að á COP30 í Belém verði þau tímamót sem sýna áframhaldandi þátttöku í markmiðum Parísarsamningsins. Auk þess benda ráðherrarnir á norræna reynslu af því að sameina græn umskipti og hagvöxt og leggja áherslu á nauðsyn þess að grípa hratt til aðgerða til að halda hnattrænni hlýnun innan við 1,5°C.
Eftir fundinn taka ráðherrar Finnlands, Svíþjóðar, Noregs og Færeyja þátt sameiginlegu norrænu COP30 kynningunni sem ber yfirskriftina Metnaður, bandalög og framkvæmd. Þar munu ráðherrarnir ræða við aðila úr rannsóknum, borgarasamfélagi og atvinnulífi um hvernig Norðurlönd geta stuðlað að góðum niðurstöðum alþjóðlegu loftslagsviðræðnanna. Viðburðinum verður streymt.
Loftslagsbreytingar eru ógn við tilveru okkar og þess vegna verðum við að grípa hratt til aðgerða fyrir jörðina, mannkynið og velferð til lengri tíma.
Norræna ráðherranefndin á COP30
Fundinum var fylgt eftir með samráði við norrænu sjálfbærninefndina. Fundurinn var haldinn á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi.