Norrænu ríkisstjórnirnar tryggja forgangsröðun málefna barna og ungmenna

26.02.25 | Fréttir

Samarbejdsministrene på deres første møde i 2025. 

Ljósmyndari
norden.org
Málefni barna og ungmenna voru í brennidepli á fundi samstarfsráðherra Norðurlanda í Kaupmannahöfn 26. febrúar. Norrænu ríkisstjórnirnar vinna saman að réttindum barna og ungmenna, velferð þeirra og þátttöku í samfélaginu. Málefni barna og ungmenna eru í öndvegi í norrænu samstarfi.

Á Norðurlöndum og í Framtíðarsýn fyrir 2030 er lögð rík áhersla á að tryggja vellíðan og þátttöku barna og ungmenna. Sú vinna á sér stað þvert á fagsvið og stofnanir norræns samstarfs og fyrir vikið er starfsemi að málefnum barna og ungmenna umfangsmikil. Sem dæmi má nefna heilbrigði, menntun, jafnrétti, menningarmál, tungumál, öryggi og rannsóknir.

Tengiliður