Ný norræn matargerð í 20 ár: Ráðstefna um nýsköpun til að bregðast við aðkallandi áskorunum

07.11.24 | Fréttir
 Restaurangskolen København
Ljósmyndari
Andreas Omvik / norden.org
Fjölbreyttur og þverfaglegur hópur þátttakenda á ýmsum aldri mun koma saman á tveggja daga ráðstefnu um nýsköpun og matarmenningu 3. til 4. desember í Malmö, sem haldin er af Norrænu ráðherranefndinni. Þátttakendurnir munu vinna að hugmyndum, verkefnum og samstarfi í anda hreyfingar nýnorræna eldhússins til að bregðast við vandamálum sem steðja að heimsbyggðinni.

Næsta kynslóð áhrifavalda í heimi matargerðar og hagsmunaaðilar í allri virðiskeðjunni munu koma saman á ráðstefnunni til að vinna að sjálfbærri og viðnámsþolinni framtíð á Norðurlöndum og víðar.

Fyrir tuttugu árum varð yfirlýsingin um nýnorræna eldhúsið kveikjan að umbyltingu á matarmenningu okkar, sem dró fram kraft náttúrunnar, lagði áherslu á gæði matvæla úr nærumhverfinu og setti fram framtíðarsýn um ljúffenga en um leið heilbrigða og sjálfbæra matargerð.

Norræna ráðherranefndin var fljót til þess að styðja þessa nýju matargerðarhreyfingu fyrir tveimur áratugum og Karen Ellemann framkvæmdastjóri hennar hlakkar nú til þeirra hugmynda og lausna sem ráðstefnan mun kynna til sögunnar:

„Nýnorræna eldhúsið breytti matargerðarlandslaginu á Norðurlöndum og Norræna ráðherranefndin var reiðubúin til að styðja hreyfinguna með sameiginlegri áætlun. Þetta er frábært dæmi um norrænt samstarf, frá grasrótarhreyfingu til pólitískra aðgerða. Ég hlakka til að taka þátt í Nýsköpunarráðstefnunni í Malmö til að fagna 20. ára afmælinu og, það sem mikilvægara er, ræða framtíðina.“

Þörf á nýrri byltingu í matarmenningu

Loftlagsvandi og versnandi færni í matargerð; þetta eru aðeins tvö dæmi um aðkallandi vanda í samfélögum okkar á 20. ára afmæli yfirlýsingarinnar um nýnorræna eldhúsið.

Frumkvöðullinn og mataraðgerðasinninn Claus Meyer, sem var drifkrafturinn á bak við yfirlýsinguna, leggur áherslu á mikilvægi þess að fá næstu kynslóð kokka, leiðtoga í matargerð og félagasamtök til að taka þátt í því að efla norrænu matargerðarhreyfinguna og framlag hennar til sjálfbærs og heilbrigðs matarumhverfis á Norðurlöndum.

„Þrátt fyrir að yfirlýsingin um nýnorræna eldhúsið og hreyfingin sem varð kveikjan að hafi haft mun meiri áhrif en við gáttum ímyndað okkur eru margar áskorananna enn þær sömu, en aðrar nýjar eru nú skýrari. Við höfum ekki enn umbylt matarvenjum okkar á Norðurlöndum þannig að við getum skapað matvælakerfi og matarmenningu sem eru raunverulega lífvænleg,“ segir Claus Meyer.

„Ég er einstaklega spenntur fyrir því að okkur hafi tekist að kalla saman slíkan hóp mikilvægra og ekki síst ungra radda til að hjálpa okkur að marka stefnu til framtíðar,“ segir hann að lokum.

Nýjar leiðir kannaðar á ráðstefnu um nýsköpun

Þátttakendurnir verða fleiri en 60 á tveggja daga ráðstefnunni í Malmö 3. til 4. desember. Innblásnir fyrirlestrar verða fluttir, vinnustofur haldnar og umræður fara fram með það fyrir augum að finna nýjar lausnir. Bein útsending frá setningu ráðstefnunnar 3. desember verður opin öllum í streymi á netinu. Niðurstöður ráðstefnunnar verða kynntar í byrjun árs 2025.

Norræna ráðstefnan um nýsköpun og matarmenningu er þróuð og hönnuð af Meyers Madhus, Madkulturen og Norrænu nefndinni um landbúnaðar- og matvælarannsóknir fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar.

Fylgstu með setningu ráðstefnunnar á netinu

Karen Ellemann, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar Claus Meyer, frumkvöðull og mataraðgerðasinni og Frida Nilsson kokkur opna ráðstefnuna og fleiri ræðumenn verða staðfestir síðar. Hægt verður að fylgjast með setningu ráðstefnunnar, með ræðum og umræðum, 3. desember á netinu. 

Tími: 10:45 – 12:00 (CET).

Beint streymi: Horfðu á setningu ráðstefnunnar á netinu 

Ráðstefnan fer fram á ensku.

Upplýsingar fyrir fjölmiðla
Hægt verður að fylgjast með setningu ráðstefnunnar 3. desember á netinu. Einnig er hægt að fjalla um bæði setningu ráðstefnunnar og nýsköpunarfundina á staðnum í Malmö. Til að fá nánari upplýsingar eða biðja um viðtöl skal hafa samband við: 

Josefine Carstad, aðalráðgjafi: joscar@norden.org

Jonathan Eng, verkefnisstjóri: joneng@norden.org

 

Tengiliður