Það er „win win“ að vinna áfram með norræna matargerðarhreyfingu

12.12.24 | Fréttir
NNF 2024 Bothildenborg
Ljósmyndari
Kelly Bedmyr, Surr Studio
Fyrsta þriðjudaginn í desember hófst endurvakning hinnar nýnorrænu matargerðarhreyfingar. 65 áhrifaaðilum úr öllum greinum norræns matvælaiðnaðar var boðið til Malmö til þess að taka þátt í að leita lausna nokkrum af helstu úrlausnarefnum samfélagsins – allt frá loftslagsvandanum til þverrandi kunnáttu í matargerð. Niðurstöðurnar verða kynntar í skýrslu í byrjun árs 2025.

Grænmeti og heysátur prýddu sviðið þegar 65 sérvaldir þátttakendur komu saman á veitingastaðnum Mygel í Malmö til að taka þátt í Nordic Food Innovation Summit, tveggja daga ráðstefnu sem haldin var í tilefni af því að 20 ár eru frá yfirlýsingunni um nýja norræna matargerð.

Yfirlýsingin um nýja norræna matargerð árið 2004 markaði upphafið að breytingum á norrænni matarmenningu. Í henni var áhersla var lögð á kraft náttúrunnar, gæði matvæla úr nærumhverfinu og sett fram framtíðarsýn um heilbrigða, sjálfbæra og bragðgóða matargerð. Nú, tuttugu árum síðar, kalla áskoranir á borð við loftslagsvandann og þverrandi kunnáttu almennings í matargerð á nýjar aðgerðir.

Framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, Karen Ellemann, segir:

Það er pólitískt forgangsmál hjá Norrænu ráðherranefndinni að tryggja sjálfbær og heilnæm matvælakerfi á Norðurlöndum. Þess vegna styðjum við að sjálfsögðu áframhaldandi starf og þvernorræna kynningu á nýrri norrænni matargerðarhreyfingu sem var bylting í norrænni matargerð. Það er hreyfing sem er góð fyrir bæði lýðheilsu, samkeppnishæfni, umhverfið og loftslagið – sem sagt, win win!

Ráðstefnan hófst með erindum, umræðum og ávarpi, meðal annars frá Kim Kielsen, veiðimálaráðherra Grænlands, sem benti á að bæði matvælakerfi og neysluvenjur norrænu séu mjög mismunandi á milli norrænu landanna. Hann fór heldur ekki í grafgötur með afstöðu sína til matarsóunar og sagði meðal annars: „Það ætti að vera markmið allra að nýta allt það sem þeir taka úr náttúrunni til þess að koma í veg fyrir og lágmarka matarsóun. Þetta ætti að vera hluti af námsskrá opinberra skóla og hinnar nýju deildar, SILA, við Grænlandsháskóla, Ilisimatusarfik.“ 

Að lokum sagði hann:

Matur úr heimabyggð er ekki bara fyrir magann heldur nærir hann líka andann. 

Framleiðsla, matarsóun og mataræði

Í pallborðsumræðum í upphafi ráðstefnunnar sagði vísindamaðurinn Elin Röös að ekki sé um neina skyndilausn að ræða og að þrjár aðgerðir ráði sérstaklega úrslitum: Úrbætur í framleiðslu, að draga úr matarsóun og breytingar á mataræði okkar. Og þótt norrænu löndin standi frammi fyrir mismunandi úrlausnarefnum í tengslum við virðiskeðju matvæla er margt sem varðar óhagkvæmar neysluvenjur okkar sem við getum tekist á við í sameiningu.  

Að setningunni lokinni var farið með þátttakendur til Botildenborg Social Farm & Kitchen þar sem vinnustofur fóru fram. Tækifæri og hindranir voru greindar og aðgerðir mótaðar. Á lokadeginum kynntu vinnuhóparnir, sem voru alls sjö, sínar bestu hugmyndir fyrir öllum þátttakendum auk Karenar Ellemann, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar, sem þakkaði fyrir vinnuna:

Ég er ánægð og þakklát með framlag ykkar og hlakka mjög til að kynna mér skýrsluna betur og leggja hana fyrir ríkisstjórnir norrænu landanna.

Allar niðurstöður og tillögur verða teknar saman í skýrslu sem kemur út í upphafi árs 2025. 

Þemu í vinnustofunum:  

  • Meals and cooking in homes and communities 
  • Professional Kitchens – public and private  
  • Primary production – on land and in the sea 
  • The culinary education of children and youth – in school and daycare 

Nordic Food Innovation Summit var haldin á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar í samstarfi við Meyers Madhus, Madkulturen og NKJ. 

Árið 2004 skrifuðu tólf kokkar frá öllum Norðurlöndum undir yfirlýsingu um nýja norræna matargerð. Yfirlýsingin inniheldur tíu viðmið sem eiga að vera leiðbeinandi fyrir bragðgóða, árstíðabundna, heilnæma og sjálfbæra matargerð þvert á norræn landamæri.