Þessi verk eru tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2021

Frá árinu 2002 hafa kvikmyndaverðlaunin verið veitt kvikmyndum í fullri lengd sem eiga rætur í norrænni menningu og hafa mikið listrænt gildi.
Þetta eru myndirnar sem tilnefndar eru til verðlaunanna í ár:
DANMÖRK
FINNLAND
ÍSLAND
NOREGUR
SVÍÞJÓÐ
Norrænu myndirnar fimm voru tilnefndar af dómnefndum í löndunum.
Verðlaunamyndin kynnt 2. nóvember
Handhafi kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2021 verður kynntur um leið og handhafar annarra verðlauna Norðurlandaráðs þann 2. nóvember í Kaupmannahöfn í tengslum við þing Norðurlandaráðs.
Verðlaunaféð nemur 300 þúsundum danskra króna og skipta handritshöfundur, leikstjóri og framleiðandi upphæðinni á milli sín enda er kvikmyndagerð listgrein þar sem árangurinn verður til í nánu samstarfi þessara aðila.
Hér er hægt að sjá bestu norrænu kvikmyndirnar í haust
Í haust verða hinar fimm tilnefndu myndir sýndar á eftirtöldum viðburðum og stöðum víða um Norðurlönd:
Um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt norrænni kvikmynd með mikið listrænt gildi. Myndin þarf að hafa verið frumsýnd í kvikmyndahúsum á tímabilinu 1. júlí 2020 til 30. júní 2021.
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 2002 og eru veitt árlega um leið og önnur verðlaun ráðsins fyrir bókmenntir, tónlist og starf að umhverfismálum. Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn hefur umsjón með kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs.