Gæti þang orðið framtíðarpróteingjafi Norðurlanda?
Þang er kannski ekki enn orðið fastur liður á norrænum matarborðum, en áhuginn fer ört vaxandi. Ný skýrsla sem fjármögnuð var af Norrænu ráðherranefndinni sýnir að tilteknar tegundir þangs innihalda sambærilegt magn próteins og belgjurtir, baunir og soja.