Framtíð Nýrrar norrænnar matargerðar: tíu hugmyndir kynntar í nýrri skýrslu
Matargerð sem skyldunám í norrænum skólum, norrænt matvælaráð og stefnumarkandi samráð um þvernorræna matvælalöggjöf eru dæmi um þær tíu hugmyndir sem settar eru fram í nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar.
Í tilefni af því að 20 ár eru liðin frá útgáfu yfirlýsingarinnar um nýja norræna matargerð komu aðilar norræna matvælaiðnaðarins saman á Nordic Food Innovation Summit í Malmö í desember. Markmiðið var að nýta reynslu og sköpunarkraft hópsins til þess að móta sameiginleg markmið og leggja til beinar aðgerðir sem eflt geta samstarf í tengslum við matarmenningu og matvælakerfi á Norðurlöndum.
Niðurstöðurnar liggja nú fyrir í nýrri skýrslu.
Yfirlýsingin um nýja norræna matargerð árið 2004 markaði upphafið að breytingum á norrænni matarmenningu. Í henni var áhersla var lögð á kraft náttúrunnar, gæði matvæla úr nærumhverfinu og sett fram framtíðarsýn um heilbrigða, sjálfbæra og bragðgóða matargerð. Nú, tuttugu árum síðar, kalla áskoranir á borð við loftslagsvandann og þverrandi kunnáttu almennings í matargerð á nýjar aðgerðir.
Nauðsynlegar breytingar
Til þess að ná markmiðum framtíðarsýnar norrænu forsætisráðherranna, heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og Parísarsamkomulagsins verðum við að breyta matvælakerfum okkar. Norrænu löndin standa frammi fyrir margs konar sameiginlegum áskorunum á sviði matvæla og aukið samstarf getur verið einn af lykilþáttunum í því að tryggja aukna sjálfbærni og viðnámsþol í matvælakerfum á öllum Norðurlöndum.
Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar segir: „Á tímum sem einkennast af krísum og breyttri stöðu heimsmála er mikilvægt að Norðurlönd sameinist um markmið þvert á landamæri. Þátttakendur eiga þakkir skildir fyrir að hafa sett aukinn kraft í þessa hreyfingu sem býður upp svo mikla möguleika, bæði með tilliti til grænna umskipta, hollustu og viðnámsþols.“
Claus Meyer, frumkvöðull í matargerðarlist, segir: „Eitt besta úrræði sem við höfum til þess að búa til samfélag sem betur tekur mið af þolmörkum jarðarinnar er að breyta því hvernig við framleiðum og notum matvæli. Á 20 árum höfum við á Norðurlöndum gert svæðið að alþjóðlegum miðpunkti matargerðar. Nú er kominn tími til að uppfylla hið raunverulega markmið norrænu matargerðarhreyfingarinnar: að búa til breiða, alþýðlega matarmenningu sem stuðlar að hollustu, samkennd og sjálfbærni og getur verið heiminum fyrirmynd þegar kemur að nauðsynlegum breytingum á matvælakerfum okkar. Hugmyndirnar sem urðu til í Malmö og koma nú út geta allar átt þátt í því.“
Judith Kyst, ritstjóri Madkulturen, segir: „Sem hreyfing í matargerðarlist hefur Ný norræn matargerð sett mark sitt á veitingabransann á Norðurlöndum í heild sinni og lyft honum á hærra plan. Ef við nálgumst matarmenningu í víðtækum skilningi með sama hætti geta daglegar matarvenjur okkar orðið mun stærri liður í lausninni þegar kemur að loftslagsmálum, hollustu og viðnámsþrótti. Innovation Summit í Malmö sýndi að innan norræns samstarfs er bæði til staðar mikill vilji og góð tækifæri til að lyfta matarmenningunni upp. Hugmyndirnar tíu sem fram komu fela í sér mjög góða leið að því.“
Nordic Food Innovation Summit var haldin á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar í samstarfi við Meyers Madhus, Madkulturen og NKJ.
Þátttakendur eiga þakkir skildir fyrir að hafa sett aukinn kraft í þessa hreyfingu sem býður upp svo mikla möguleika, bæði með tilliti til grænna umskipta, hollustu og viðnámsþols.