Húsnæði á Álandseyjum
Að meginreglunni til er hægt að kaupa húsnæði á öllum svæðum sem ætluð eru til fastrar búsetu þegar flutt er til Álandseyja. Með heimabyggðarrétti fæst ótakmarkaður eignarréttur á jörð og fasteign á Álandseyjum, en sækja má um hann eftir fimm ára samfellda búsetu á Álandseyjum. Ekki þarf þó heimabyggðarrétt til að eiga íbúð í gegnum húseigendafélag eða leigja húsnæði.
Búsetuform og skattlagning í tengslum við búsetu eru eins og í Finnlandi og lesa má nánar um það og aðrar gagnlegar upplýsingar á síðunni „Húsnæði í Finnlandi“.
Fasteignakaup
Allir geta keypt húsnæði á Álandseyjum, jafnvel án heimabyggðarréttar, en þá þarf sérstaka undanþágu í formi landkaupaleyfis frá landsstjórn Álandseyja. Fasteignasölur geta aðstoðað við að finna fasteign til að kaupa og einstaklingar selja einnig fasteignir sínar án aðkomu fasteignasala.
Fastigheter.ax inniheldur allar fasteignasölur á Álandseyjum. Einnig getur verið gagnlegt að nota samfélagsmiðla, tengingar og lesa dagblöðin til að finna fasteignir til sölu.
Fasteign getur til dæmis verið hús eða sumarhús með garði. Ef þú vilt kaupa húsnæði til að hafa fasta búsetu á Álandseyjum eftir að hafa flutt þangað nýlega og án þess að hafa heimabyggðarrétt þarf eignin að vera á svæði sem er skipulagt sem íbúðasvæði og vera minni en 4000 fermetrar. Með leyfi til landkaupa er hægt að kaupa fasteign án þess að hafa heimabyggðarrétt.
Fasteignakaup eru yfirleitt fjármögnuð með sparnaði eða húsnæðisláni. Kostnaður húsnæðislána ræðst meðal annars af vaxtastigi, lánstíma, gæðum veðs og kjörum viðskiptavinar hjá banka. Ef fasteign er keypt á Álandseyjum með húsnæðisláni frá banka í öðru norrænu landi þarf yfirleitt ekki að nota fasteignina sem veð fyrir lánið. Við fasteignakaup þarf auk kaupverðsins að greiða fasteignakaupaskatt. Kaupskattur er 3% skattur í eitt skipti.
Allir geta keypt eða leigt íbúð í gegnum húseigendafélag á Álandseyjum. Engin skylda er um skráningu lögheimilis á heimilisfangi slíkrar íbúðar. Þú getur búið í íbúðinni til langs tíma eða tímabundið og getur leigt hana út.
Við fasteignakaup þarf auk kaupverðsins að greiða fasteignakaupaskatt. Kaupskattur íbúða er 1,5% skattur í eitt skipti.
Réttur til húsnæðiskaupa
Allir geta keypt og leigt húsnæði á Álandseyjum. Hins vegar þarf álenskan heimabyggðarrétt til að eiga og ráða yfir landareign á Álandseyjum. Mögulegt er að kaupa íbúð, hús eða landareign á Álandseyjum jafnvel án þess að hafa heimabyggðarrétt. Landsstjórn Álandseyja getur veitt undanþágur frá kröfunni um heimabyggðarrétt að undangenginni umsókn um leyfi til landkaupa.
Í hlutunum hér að neðan má lesa um skilyrði heimabyggðarréttar og um leyfi til landkaupa.
Ef þú hefur búið á Álandseyjum í fimm ár samfellt og ert finnskur ríkisborgari getur þú sótt um álenskan heimabyggðarrétt. Heimabyggðarréttur Álandseyja gefur meðal annars rétt til að eiga og ráða yfir fasteignum á Álandseyjum án takmarkana. Ef þú býrð á Álandseyjum við fæðingu færðu sjálfkrafa álenskan heimabyggðarrétt. Heimabyggðarréttur getur fallið úr gildi við búsetu utan Álandseyja í meira en fimm ár. Ef flutt er aftur til Álandseyja er hægt að sækja um að fá aftur heimabyggðarrétt.
Nánari upplýsingar um heimabyggðarrétt eru á síðu Info Norden um heimabyggðarrétt á Álandseyjum eða á vefsíðu landsstjórnar Álandseyja.
Landsstjórn Álandseyja getur veitt leyfi til landkaupa til fastar búsetu til þeirra sem ekki hafa heimabyggðarrétt. Fasteignin þarf að vera á svæði sem er íbúðasvæði samkvæmt skipulagi og má ekki vera stærri en 4000 fermetrar. Afgreiðslutími lána er allt að tveir mánuðir og sveitarfélagið þar sem fasteignin er staðsett er tilvísunaryfirvald.
Kynntu þér algengustu spurningar og reglur um leyfi til landkaupa og hvernig sótt er um það á vefsíðu landsstjórnar Álandseyja.
Leigja húsnæði
Öllum er frjálst að leigja húsnæði á Álandseyjum –engin krafa er gerð um heimabyggðarrétt eða leyfi til landkaupa. Leiguhúsnæðið er oft í eigu fyrirtækja og sveitarfélaga á Álandseyjum, en þó einnig einstaklinga. Sérstök leigulöggjöf gildir á Álandseyjum og til dæmis er engin krafa gerð um heimilistryggingu, en leigusali getur þó sjálfur sett eigin reglur í leigusamningi. Nánari upplýsingar um leigulöggjöf á Álandseyjum er að finna á vefsíðu landsstjórnar Álandseyja.
Framboð á leiguhúsnæði og leiguverð er breytilegt milli sveitarfélaganna. Leigan er oftast hærri í Mariehamn en í skerjagarðinum og á landsbyggðinni. Leiguverð leiguhúsnæðis á vegum sveitarfélaga er almennt lægra en íbúða á einkamarkaði og algengt er að leigusalar krefjist innborgunar við innflutning til viðbótar við mánaðarlegra leigu.
Til að leigja húsnæði á vegum sveitarfélags þarf að hafa samband við sveitarfélagið og í sumum tilfellum einnig skrá sig á biðlista eftir leiguhúsnæði. Margir einstaklingar og fyrirtæki auglýsa húsnæði til leigu á stafrænum miðlum. Nýttu þér tengslanet þitt í leit þinni að húsnæði. Til dæmis gæti vinnuveitandi þinn hjálpað þér að finna húsnæði ef þú hefur nýlega flutt til Álandseyja.
Á vef Åland Living um leiguhúsnæði má finna marga einkaaðila sem leigja út húsnæði og leigufyrirtæki. Á síðunni er einnig vísað á hópa á samfélagsmiðlum þar sem einstaklingar auglýsa eftir leigjanda.
Námsmannahúsnæði
Eftirspurnin eftir húsnæði fyrir námsmenn er oft mikil í upphafi annar og það getur verið gott að byrja strax að leita að húsnæði eftir að umsókn um nám hefur verið samþykkt. Námsmannahúsnæði er í boði frá ýmsum aðilum en einnig er algengt að leigja hjá einkaaðila eða í gegnum sveitarfélag. Á vef Háskólans á Álandseyjum má finna leigusala sem bjóða upp á húsnæði sem hentar námsmönnum.
Selja húsnæði
Á Álandseyjum gilda sömu reglur og í Finnlandi. Áður en fasteign er selt þarf meðal annars að athuga hvaða vottorð þarf fyrir sölu, útbúa kaupsamning, greiða gildandi skatta og fleira. Þú getur nýtt þér þjónustu fasteignasölu til að selja fasteign þína á Álandseyjum og um leið fengið aðstoð við umsýsluþætti ferlisins.
Á síðunni „Húsnæði í Finnlandi“ má finna nánari upplýsingar um hvers er krafist við sölu fasteigna á Álandseyjum og í Finnlandi. Suomi-vefþjónustan gefur einnig gagnlegar upplýsingar um söluferlið.
Skattar og húsnæði
Á Álandseyjum gilda sömu reglur og skattaskilyrði og í Finnlandi hvað varðar húsnæði og fasteignir. Þetta á til dæmis við um leigutekjur, fasteignaskatta, erfða- og gjafaskatt, fasteignasöluskatt og söluhagnað.
Á vef skattayfirvalda má finna samantekt upplýsinga um skattlagningu húsnæðis og eigna. Upplýsingar um sérstakan skattafrádrátt Álandseyja fást á síðunni „Skattar á Álandseyjum“.
Húsnæðisstyrkur
Húsnæðisstyrkur er skattfrjáls styrkur sem ætlað er að minnka húsnæðisútgjöld heimila með litlar tekjur. Á Álandseyjum er það FPA sem hefur umsjón með almennum húsnæðisstyrk og húsnæðisstyrk fyrir lífeyrisþega. Vinnumarkaðs- og námsþjónustustofnun Álandseyja (AMS) ber ábyrgð á húsnæðisstuðningi fyrir námsfólk sem uppfyllir skilyrði almennra námsstyrkja eða námsstyrkja fyrir fullorðna.
Að meginreglunni til er aðeins hægt að fá eina tegund húsnæðisstyrks í einu. Almenni húsnæðisstyrkurinn og húsnæðisstyrkur fyrir lífeyrisþega eru aðeins veittir vegna kostnaðar húsnæðis í Finnlandi eða á Álandseyjum. Nánari upplýsingar um húsnæðisstyrkinn og upphæðir hans og húsnæðisstyrk námsfólks eru gefnar á síðunni „Húsnæðisstyrkur á Álandseyjum“.
Nánari upplýsingar
Á vefsíðum Info Norden er að finna upplýsingar um húsnæði annars staðar á Norðurlöndum og þær stofnanir sem leita skal til vegna spurninga.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.