Norðurlandaráð kemur saman 15.-16. september í Osló
Frá Stórþinginu í Osló.
Norrænt-baltneskt gervigreindarsetur, New Nordics AI, verður sett á fótinn í haust með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar. Setrinu er ætlað að auðvelda bæði opinberum stofnunum og einkaaðilum að nýta sér gervigreind og örva nýsköpun og samvinnu þvert á landamæri og starfsgreinar.
Hvernig geta Norðurlönd orðið leiðandi á sviði gervigreindar? Þetta er meginþema á allsherjarfundi Norðurlandaráðs í Osló. Það er norska Stórþingið sem hýsir fundinn sem hefst með ávarpi stafvæðingarráðherra Noregs, Karianne Tung, þar sem spurt er hvers gervigreindarbyltingin krefst af norrænu stjórnmálafólki. Í umræðunum taka þátt bæði fulltrúar atvinnulífsins og formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs, Eva Lindh frá Svíþjóð.
Samkoman í Osló er fyrst og fremst vettvangur fyrir fagnefndir og forsætisnefnd Norðurlandaráðs til að hittast og fjalla um tillögur og tilmæli sem leggja á fyrir Norðurlandaráðsþing í Stokkhólmi í október næstkomandi. Þá hittast þingfulltrúar í flokkahópum sínum þar sem þeim gefst færi á að spjalla við norræna kollega sína um þau stefnumál sem eru í deiglunni.