Norðurlönd sameinast um eflingu sjálfbærra og vatnsrænna matvælakerfa á hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
Yfirlýsingin ber yfirskriftina „Efling vatnsrænna matvælakerfa fyrir heilsu hafs og manna“ og í henni er áhersla lögð á mikilvægi þess að vernda höfin, bæði sem vistkerfi og sjálfbæra og næringarríka matvælaauðlind. Með þessu vilja Norðurlönd taka sér forystuhlutverk í umskiptunum í átt til sjálfbærari matvælakerfa í heiminum.
– Ég fagna yfirlýsingu norrænu landanna í tengslum við hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Aukið samstarf og nýsköpun skipta sköpum þegar kemur að því að vernda hafið og tryggja sjálfbær vatnsræn matvælakerfi. Við hlökkum til þess að taka þátt í þessari mikilvægu vinnu,“ segir Marianne Sivertsen Næss, sjávarútvegsráðherra Noregs sem jafnframt á sæti í Norrænu ráðherranefndarinni um fiskveiðar, fiskeldi, landbúnað, matvæli og skógrækt.
Sjávarfang bæði fólksins og umhverfisins vegna
Yfirlýsingin byggist á einni af grundvallarstoðum norræns samstarfs, Norrænum næringarráðleggingum 2023. Þær eru hinn vísindalegi grunnur sem næringarráðleggingar norrænu og baltnesku landanna eru byggðar á, ásamt því að nýtast sem þekkingargrunnur fyrir fjölda landa um allan heim. Þær eru helstu vísindalegu gögn á heimsvísu um heilnæmt og sjálfbært mataræði. Ein næringarráðlegginganna felst í því að neyta í auknum mæli sjálfbærra matvæla sem koma úr vatni, bæði heilsunnar og umhverfisins vegna.
Sjávarfang og vatnsræn matvæli, svo sem fiskur og skeldýr, eru næringarrík og hafa minna vistspor en margar gerðir matvæla sem unnin eru á landi og geta því leikið stórt hlutverk þegar kemur að sjálfbæru mataræði framtíðarinnar. Með góðri fiskveiðistjórnun og ábyrgu lagareldi geta höfin lagt sitt af mörkum til aukinnar matvælaþarfar heimsins án þess að það ógni vistkerfum.
– Við verðum að nýta þekkingu okkar til að þróa auðlindir hafsins með sjálfbærum hætti. Það er á ábyrgð Norðurlanda að taka forystu og við ætlum að leggja okkar af mörkum með bæði rannsóknum og samvinnu til að tryggja að hafið færi okkur eftir sem áður bæði mat, störf og þróttmikil samfélög,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Samvinna og miðlun þekkingar í brennidepli
Norrænu löndin undirstrika mikilvægi marghliða samstarfs til að takast á við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í tengslum við hafið. Með sameiginlegum rannsóknum og nýsköpun í bland við alþjóðlegt samstarf er hægt að efla sjálfbær og vatnsræn matvælakerfi, bæði svæðisbundið og á heimsvísu.