Samþætting með aðstoð stafvæðingar – CBDS-verkefnið
Fyrir íbúa Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna ætti nám erlendis að vera jafn sjálfsagt og nám í heimalandinu. Snemmbær reynsla af því búa erlendis styrkir samnorræna sjálfsmynd og býr til sambönd til langs tíma.
Hreyfanleiki yfir landamæri hefur aukist verulega. Samkvæmt rannsókn sem unnin var fyrir Norrænu ráðherranefndina árið 2019 varð 60 prósenta aukning á vinnu yfir landamærin á milli Svíþjóðar og Danmerkur á tímabilinu 2005–2015. Meira en 300 þúsund Norðurlandabúar búa eða starfa í öðru norrænu landi, þar á meðal 8500 nemendur. Þrátt fyrir tímabundna erfiðleika á borð við landamæralokanir vegna Covid-19 er búist við áframhaldandi aukningu á hreyfanleika.
Framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar er að Norðurlönd verði samþættasta svæði heims árið 2030. Til að svo megi verða þarf óhindrað flæði persónuupplýsinga á borð við einkunnir yfir landamæri, óháð reglum í hverju landi fyrir sig.
Finnland á frumkvæðið
Norræna ráðherranefndin hefur í þessu augnamiði hafið stefnumiðaða vegferð til langs tíma og styrkt ýmis verkefni sem stuðla að bættum gagnaflutningum á milli landa og tenginga á milli stafrænnar þjónustu og kerfa í löndunum. Á formennskuári sínu í Norðurlandaráði árið 2021 hleyptu Finnar af stokkunum verkefni undir yfirskriftinni „World’s Smoothest Cross-Border Mobility and Daily Life Through Digitalisation“.
Einn þriggja helstu verkþáttanna í formennskuáætlun Finnlands fólst í verkefninu „Improved Cross-Border Digital Services for Studying Abroad in The Nordic and Baltic Countries Project“, sem oft er vísað til CBDS-verkefnisins. Verkefnið beindi sjónum að vandamálinu við að tryggja öruggan stafrænan flutning einkunna á milli háskóla og annarra æðri menntastofnana.
Menntamálastofnun Finnlands (Opetushallitus) var falið verkefnið og kom það í hlut Riikku Rissanen verkefnastjóra og Petteri Pulli sérfræðings að vinna það. Fjögurra ára vinnu þeirra lauk í desember 2024.
Niðurstöður þessa verkefnis gagnast nemendum og skrifstofum menntastofnanna í gegnum hnökralausari og öruggari samtengda stafræna þjónusta, einkum í tengslum við samræmt ferli varðandi flutninga nemenda. Við teljum einnig að skýrslur verkefnisins innihaldi dýrmætan þekkingargrunn fyrir yfirvöld og önnur tengd verkefni,“ segja Pulli og Rissanen.
„Almenningur býst nú þegar við þessu“
1. Samstarf við ESB-verkefni
CBDS-verkefnið studdi við ESB-verkefni á borð við Digital Credentials for Europe (DC4U) og Once-Only Technical System (OOTS) sem stuðla að öruggri miðlun skjala yfir landamæri.
2. Obinberir embættismenn
Embættismenn úr ráðuneytum tóku þátt í verkefninu, einkum frá Finnlandi, Eistlandi og Lettlandi.
3. Sérfræðingar á sviði gagnagrunna og skráningar
Samstarf við upplýsingaþjónustuveitendur á borð við IT Centre for Science (CSC) í Finnlandi stuðlaði að aukinni samþættingu gagna. Kimmo Rautio frá CSC:
„Í CBDS-verkefninu var unnið með hagsmunaaðilum sem bera ábyrgð á þróun núverandi og nýrra gagnagrunna, þjónustu og skrám um nám. Verkefnið var hvetjandi og drífandi fyrir alla aðila og starfsemi og ýtti verulega undir samþættingu gagna um nám á milli háskóla í Eystrasaltsríkjunum og á Norðurlöndum.“
4. Veitendur lausna
CBDS-verkefnið jók við notkun EMREX-kerfisins sem styður við flutning nemendagagna á milli landa.
„Notendahópur og stjórn EMREX er mjög ánægð með þá vinnu sem unnin var í tengslum við CBDS-verkefnið. Verkefnið talaði máli EMREX-kerfisins og skilaði áþreifanlegum árangri. Tveir nýir aðilar hafa gengið til liðs við EMREX-kerfið með gagnagrunna sína og viðskiptavini, sem er frábær árangur,“ segir Tor Fridell, formaður notendahóps EMREX frá háskólanum í Linköping. Hann heldur áfram:
„Jafnframt skilaði verkefnið af sér vel skrifaðri handbók fyrir þá sem hafa áhuga á að ganga til liðs við EMREX-kerfið, sem mun koma sér mjög vel fyrir okkur. Stjórn EMREX vill færa verkefninu og þeim sem að því stóðu miklar þakkir.“
5. Skrifstofur háskólastofnana
Verkefnið stuðlaði að samræmdum ferlum sem ýta undir alþjóðlega samþættingu.
6. Nemendur
Loks eru það nemendur sem njóta góðs af einfaldari flutningi eininga sem dregur úr álagi og skrifræði fyrir einstaklinga og hvetur fleira ungt fólk til þess að stunda nám erlendis.
Leiðin fram á við
Til þess að samræmt gagnakerfi þvert á landamæri megi verða að veruleika leggur CBDS-verkefnið til áframhaldandi rannsóknir, þjálfun hagaðila og samræmingu á stefnu. Áhersla er lögð á þörfina á frekari greiningu á kostnaði og ávinningi af auknum gagnaskiptum, einkum á sviðum á borð við íbúaskráningar, sem myndi til lengri tíma litið styðja við aðra stafræna þjónustu á borð við persónuskilríki, heilbrigðisþjónustu og skattamál.
Einnig mælir verkefnið með því að ríki og fjölþjóðlegar stofnanir taki þátt í gerð nýrra alþjóðasamninga til að samræma gagnaskipti og leysa úr lagalegum álitamálum. Þetta er nauðsynlegt í því skyni að koma upp sameiginlegum, traustum gagnaskiptakerfum sem standast áskoranir framtíðarinnar.
„Verkefnið hefur styrkt tengslanet stjórnvalda og annarra helstu hagsmunaaðila og þannig gert nánara samstarf um miðlun gagna um nám á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu mögulegt.“
Fyrsta hluta verkefnisins lauk í desember 2024 og skilaði það sér í áherslu á samþætta stafræna framtíð fyrir alla íbúa Norðurlanda og Eystrasaltssvæðisins. Von allra sem að verkefninu komu er sú að þetta mikilvæga undirbúningsstarf, þar sem tekið var á tæknilegum, lagalegum og skipulagslegum hindrunum, sem og leiðum til að ryðja þeim úr vegi, muni gagnast vel í framtíðinni. Eins og Rissanen og Pulli segja að lokum:
„Verkefnið hefur styrkt tengslanet stjórnvalda og annarra helstu hagsmunaaðila og þannig gert nánara samstarf um miðlun gagna um nám á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu mögulegt.“
Heimildir, tenglar og nánari upplýsingar
Vefsvæði CBDS-verkefnisins
Improved Cross-Border Digital Services for Studying Abroad in The Nordic and Baltic Countries
https://wiki.eduuni.fi/pages/viewpage.action?pageId=395924184
Kynning á CBDS-verkefninu:
Baseline Study of Cross-Border Data Exchange in the Nordic and Baltic Countries:
https://pub.norden.org/temanord2021-547/
The Handbook of Cross-Border Data Exchange:
https://pub.norden.org/temanord2023-542/
Formennskuáætlun Finnlands:
”World’s Smoothest Cross-Border Mobility and Daily Life Through Digitalisation”
https://wiki.dvv.fi/pages/viewpage.action?pageId=117377490
Cross Border Digital Services (CBDS)-verkefni Norrænu ráðherranefndarinnar:
https://www.norden.org/is/node/71494
Heimasíða EMREX