Dronningen hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2019

29.10.19 | Fréttir
Vinnare av Nordiska rådets filmpris 2019

Vinnare av Nordiska rådets filmpris 2019, Hjärter dam (Dronningen) Danmark. Manusförfattare och regissör May el-Toukhy, manusförfattare Maren Louise Käehne och producenterna Caroline Blanco och René Ezra.

Photographer
Magnus Fröderberg
Danska kvikmyndin Dronningen hlýtur verðlaunin fyrir ítarlega lýsingu á hörmulegu fjölskylduleyndarmáli og afleiðingum ofdrambs, losta og lyga sem leggjast á eitt til að leiða aðalpersónuna í óhugsandi ógöngur.

Handritshöfundurinn og leikstjórinn May el-Toukhy, handritshöfundurinn Maren Louise Käehne og framleiðendurinir Caroline Blanco og René Ezra tóku við kvikmyndaverðlaununum úr hendi leikkonunnar Lene Cecilie Sparrok við verðlaunaathöfn í beinni útsendingu frá tónleikahúsinu í Stokkhólmi á þriðjudagskvöld.

Rökstuðningur dómnefndar

Fjallar myndin um miðaldurskrísu? Um stétt? Eða girnd og ástríðu? Gerist aðalpersónan sek um kynferðislega misnotkun, eða er hún ef til vill siðblind? Við eigum því að venjast að kvikmyndir hafi skýra meginhugsun; við vitum nánast alltaf hvort persónur kvikmynda eru góðar eða vondar. Í Dronningen láta leikstjórinn May el-Toukhy og meðhöfundur hennar Maren Louise Käehne okkur áhorfendum það eftir að átta okkur á kjarna og boðskap myndarinnar og dæma um gjörðir aðalpersónunnar Anne, sem gerir einmitt það sem EKKI á að gera – tekur upp ástarsamband við stjúpson sinn. Það einkennilega er hvað áhorfandanum finnst viðeigandi að axla þá ábyrgð. Það er ekki ánægjulegt að kynnast Anne – en það er höfug ánægja fólgin í því að upplifa þéttriðna kvikmynd sem gefur áhorfendum réttu tólin til að átta sig á eigin afstöðu til flókinnar persónu. Og treystir þeim til að geta það. Ekki er annað hægt en að vekja sérstaka athygli á Trine Dyrholm fyrir stórkostlega blæbrigðaríka frammistöðu sem Anne „drottning“, en Dronningen er sannkallað afrek á öllum sviðum – hvort sem um ræðir myndatöku, tónlist, listræna stjórnun, handrit eða annað. Útkoman er kvikmynd þar sem hið allt að því ógerlega virðist létt og fyrirhafnarlítið.

Titill á frummáli: Dronningen

Titill á ensku: Queen of Hearts

Handrit: May el-Toukhy, Maren Louise Käehne

Leikstjórn: May el-Toukhy

Framleiðendur: Caroline Blanco, René Ezra

Hér má sjá upptöku af verðlaunveitingu Norðurlandaráðs 2019

Verðlaunaveiting Norðurlandaráðs 2019 var send út beint frá tónleikahúsinu í Stokkhólmi og má sjá upptökuna fram til vors 2020 á eftirfarandi krækjum og tíma.

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir fimm verðlaun á ári hverju: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og ungmennabókmenntaverðlaun. Hver verðlaun nema 350 þúsundum danskra króna og eru þau veitt í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs.