Leiðbeiningar: Árstíðabundin störf á Íslandi

Ljósmyndari
Thordur Thorarinsson/norden.org
Ef þú hyggst dvelja á Íslandi í stuttan tíma til að vinna geturðu lesið um það hér hvað ber að hafa í huga varðandi atvinnuskilyrði, kennitölu, skattamál, almannatryggingar, heilbrigðiskerfið og margt fleira.

Þessi grein er ætluð þeim sem hyggjast vinna á Íslandi en munu vegna stuttrar dvalar ekki skrá sig í þjóðskrá eða bera fulla skattskyldu. Þetta á alla jafna við um þá sem dvelja og vinna á Íslandi skemur en sex mánuði. Ef þú hyggst dveljast lengur á landinu geturðu nálgast viðeigandi upplýsingar í leiðbeiningum okkar um að flytja til Íslands og starfa þar.

Að finna árstíðabundið starf á Íslandi

Atvinnuleit á Íslandi

Vinnumálastofnun er með skrifstofur í öllum landshlutum og einnig vefgátt með atvinnu í boði.

Alfreð er stærsti atvinnuleitarmiðill á Íslandi og hægt er að setja síur á leit svo einungis komi upp tímabundin störf.

Nordjobb: Árstíðabundin störf á Íslandi fyrir ungt fólk

Nordjobb er úrræði fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 30 ára sem langar til þess að vinna í öðru norrænu landi í nokkra mánuði. Nordjobb tengir ungt fólk við atvinnuveitendur á Norðurlöndum auk þess að aðstoða við að finna húsnæði og skipuleggja menningardagskrá í tengslum við dvölina.

Hvað þarf að hafa í huga áður en haldið er til Íslands til að vinna?

Dvalar -og atvinnuleyfi vegna árstíðabundins starfs á Íslandi

Norrænum ríkisborgurum er heimilt að flytjast búferlum til Íslands og starfa þar. Þú þarft hvorki vegabréfsáritun, atvinnuleyfi né dvalarleyfi.

Ef þú ert ekki norrænn ríkisborgari heldur ríkisborgari í ESB-landi, EES-landi eða Sviss er þér heimilt að dvelja á Íslandi í þrjá mánuði. Ef þú ert í atvinnuleit á Íslandi er þér heimilt að dveljast í landinu í allt að sex mánuði.

Ef þú óskar eftir því að starfa á Íslandi en ert ekki ríkisborgari á Norðurlöndum, í ESB-landi, EES-landi eða Sviss geturðu kynnt þér nánar möguleikana á vef Útlendingastofnunar.

Skattskylda og kennitala vegna árstíðabundins starfs á Íslandi

Ef þú ætlar að vinna á Íslandi þarftu að hafa samband við skattinn og þú þarft að fá kennitölu. Fyrir ríkisborgara EES/EFTA landa þarf að sækja um kennitölu í eigin persónu hjá Þjóðskrá Íslands eða hjá einstaka lögreglustöðvum. Fyrir aðra erlenda ríkisborgara er kennitala fengin sem hluti af dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun.

Almannatryggingar vegna árstíðarbundins starfs á Íslandi

Meginreglan er sú að einstaklingur er tryggður af almannatryggingum í því landi sem hann starfar í.

Aðild að almannatryggingum í tilteknu landi felur í sér að þú lýtur reglum þess lands í málum á borð við:

  • atvinnuleysistryggingar
  • lífeyrisgreiðslur
  • sjúkradagpeninga
  • barnabætur
  • heilbrigðisþjónustu
  • fæðingarorlofsgreiðslur
  • bætur vegna vinnuslyss

Nánar má lesa um þetta í greininni „Almannatryggingakerfi hvaða lands tilheyrir þú?“ Þar má einnig sjá hvaða yfirvöld er hægt að hafa samband við ef spurningar vakna.

Húsnæði á Íslandi

Upplýsingar um húsnæðisleit á Íslandi má finna í grein Info Norden, „Húsnæði á Íslandi“.

Það getur verið erfitt að finna húsnæði svo gott er að hefja leit með góðum fyrirvara og huga að almenningssamgöngum í nærumhverfi. 

Tryggingar á meðan þú dvelst á Íslandi

Þú þarft að hafa samband við tryggingarfélagið þitt til að ganga úr skugga um þú sért með tryggingu á meðan þú dvelst á Íslandi.

Gæludýr til Íslands

Þegar ferðast er til Íslands með gæludýr þarf að huga að ýmsum reglum. Þær geta verið mismunandi eftir því frá hvaða landi er ferðast og hversu gamalt gæludýrið er. Reglurnar gilda hvort sem þú ert á leiðinni til Íslands í frí eða hyggst flytja þangað, ert að snúa aftur til Íslands eftir að hafa verið í fríi erlendis eða hefur keypt gæludýr erlendis og hyggst hafa það með heim til Íslands.

Sérstaklega þarf að gefa því gaum að ákveðnar hundategundir eru bannaðar á Íslandi og að gerð er krafa um sóttkví við komuna til landsins.

Gerðu yfirvöldum grein fyrir að þú starfir á Íslandi

Þú þarft að gera skattayfirvöldum og almannatryggingum þess lands sem þú býrð í grein fyrir að þú munir dveljast og vinna á Íslandi um tíma.

Á meðan þú dvelst á Íslandi

Réttindi þín á íslenskum vinnumarkaði

Work in Iceland hefur tekið saman yfirlit yfir réttindi þín á íslenskum vinnumarkaði.

Sjúkratryggingar ef þú heyrir undir íslenskar almannatryggingar

Ef þú býrð í öðru norrænu landi en starfar fyrir íslenskan vinnuveitanda á Íslandi nýturðu alla jafna íslenskra sjúkratrygginga. Það þýðir að þú eigir rétt til íslenskrar heilbrigðisþjónustu á sömu forsendum og einstaklingar sem búa á Íslandi. 

Norrænir ríkisborgarar sem starfa tímabundið á Íslandi eða eru sjálfstætt starfandi geta verið áfram tryggðir í almannatryggingum landsins sem flutt er frá.

Evrópska sjúkratryggingakortið (ES kortið) er notað ef korthafi veikist eða slasast í öðru EES landi eða Sviss. Það staðfestir rétt til heilbrigðisþjónustu sem verður nauðsynleg meðan á tímabundinni dvöl stendur í EES landi og Sviss.

Atvinnuleysisbætur vegna árstíðarbundins starfs á Íslandi

Ef þú starfar á Íslandi eru það í langflestum tilvikum íslenskar reglur um almannatryggingar sem eiga við um þig. Til að launafólk eigi rétt á atvinnuleysisbótum þarf atvinnurekandi að hafa greitt tryggingagjald vegna starfsins. Ákveðnar reglur gilda um rétt til bóta eftir starfshlutfalli og hversu lengi launafólk hefur unnið sér inn réttindi.

Grunnskólar á Íslandi þegar dvalist er þar tímabundið

Á Íslandi er skólaskylda á grunnskólastigi og öll börn á skólaaldri sem búa á Íslandi eða sem munu dvelja á Íslandi í að minnsta kosti sex mánuði eiga rétt á og ber skylda til að fá kennslu. 

Börn ríkisborgara í ESB-landi sem vinna á Íslandi og hafa búsetu í öðru ESB-landi eiga rétt á því að vera skráð í grunnskóla á Íslandi. Það þýðir að börn sem búa í öðru ESB-landi geta fengið inngöngu í íslenskan grunnskóla sé um það sótt og ef laust pláss er í skólanum. Ekki skiptir máli hvort báðir foreldrar eða aðeins annar þeirra starfa á Íslandi.

Hafðu samband við sveitarfélagið sem þú dvelur í til að fá nánari upplýsingar.

Bankaþjónusta á Íslandi þegar dvalist er þar tímabundið

Viðskiptabankar á Íslandi geta gert mismunandi kröfur til þeirra sem hyggjast stofna til viðskipta hjá þeim. Meginreglan er þó sú að þeir sem vilja stofna bankareikning á Íslandi þurfa að hafa bæði íslenska kennitölu og lögheimili á Íslandi.

Rafræn skilríki á Íslandi

Rafræn skilríki eru notuð í samskiptum við hið opinbera á Íslandi og einnig við þjónustu á borð við netbanka og netverslanir. Hægt er að sækja um rafræn skilríki á skráningarstöðum um allt land, í flestum útibúum banka og sparisjóða, hjá símafyrirtækjum og hjá Auðkenni. Þegar sótt er um rafræn skilríki þarf að hafa persónuskilríki meðferðis, vegabréf, ökuskírteini og íslensk nafnskírteini eru viðurkennd. Ef þú ert með íslenskt vegabréf er einnig hægt að útbúa rafræn skilríki með Auðkennisappinu. 

Erlendir bílar á Íslandi

Heimilt er að flytja tímabundið til landsins ökutæki með erlend skráningarmerki að vissum skilyrðum uppfylltum. Fyrir komu til landsins eiga innflytjendur ökutækja að fylla út sérstaka yfirlýsingu (eyðublað hjá skattinum) og senda Skattinum í samráði við farmflytjanda eða tollmiðlara. Að hámarki getur ökutæki verið hér á landi tímabundið í 12 mánuði.

Síma -og internetáskrift á Íslandi

Alla jafna þarf maður að vera skráður í þjóðskrá á Íslandi til að kaupa síma- eða internetáskrift.

Unnt er að kaupa símakort fyrir farsíma sem er með inneign sem hlaðin er handvirkt. Ekki þarf kennitölu fyrir þá tegund símakorta. Til að skrá farsíma í áskrift þarf viðkomandi að vera með íslenska kennitölu.

 

Að dvölinni á Íslandi lokinni

Gerðu yfirvöldum grein fyrir að dvöl þinni sé lokið

Þú þarft að gera skattayfirvöldum og almannatryggingum þess lands sem þú býrð í grein fyrir að þú dveljist og vinnir ekki lengur á Íslandi.

Skattframtal frá Ríkisskattstjóra á Íslandi

Á vorin, yfirleitt í marsmánuði ber þeim sem unnið hafa á Íslandi að skila skattframtali fyrir liðið ár. Þar kemur fram hvað þú hefur verið með í tekjur og frádrátt og hvað þú hefur greitt í skatt á undanförnu almanaksári.

Hægt er að nálgast framtalið á skatturinn.is. Þú þarft að ganga úr skugga um að upplýsingarnar séu réttar, og ef til vill bæta við upplýsingum sem ekki eru forskráðar. 

Hafirðu greitt of mikið í skatt færðu endurgreiðslu. Hafirðu greitt of lítið þarftu að greiða það sem upp á vantar. 

Fyrir þá sem hafa stundað tímabundna atvinnu á Íslandi er hægt að fá einfaldað skattframtal hjá Skattinum sem heitir eyðublað 1.13. Best er að hafa samband við Skattinn til að fá upplýsingar.

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.