Leiðbeiningar: Vinna í Færeyjum

Fiskefabrik
Ljósmyndari
Oddleiv Apneseth/norden.org
Hér er að finna upplýsingar um mikilvægustu atriðin þegar hugað er að því að starfa í Færeyjum.

Það er margt sem þarf að huga að þegar íhugað er að sækja um vinnu í Færeyjum. Meðal annars í tengslum við atvinnuleit, skatta, almannatryggingar og starfsskilyrði. Hér að neðan er gátlisti sem inniheldur það mikilvægasta sem þarf að hafa í huga ef þú hyggst starfa í Færeyjum.

Atvinnuleyfi

Norrænum ríkisborgurum (dönskum, finnskum, grænlenskum, íslenskum, norskum, sænskum og álenskum) er frjálst að búa og starfa í Færeyjum án þess að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi. Ríkisborgarar annarra landa þurfa að sækja um dvalarleyfi. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðum Info Norden.

Atvinnuleit

Upplýsingar um atvinnuleit í Færeyjum er að finna á vefsíðum Info Norden.

Í atvinnuleit í Færeyjum á bótum frá heimalandinu

Einstaklingur sem er á atvinnuleysisbótum frá öðru landi getur haldið bótunum í allt að þrjá mánuði á meðan hann leitar að starfi í Færeyjum. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðum Info Norden.

Skattur

Þegar þú hefur störf í Færeyjum þarftu að vera með færeyska kennitölu (p-númer).

Hægt er að skrá sig inn á vefgáttina Borgaragluggin hjá TAKS til að fá yfirsýn yfir skattinn. Til þess þarf að nota færeysk rafræn skilríki, Samleikin.

Nánari upplýsingar er að finna á vefnum taks.fo.

Almannatryggingar

Ef einstaklingur flytur til Færeyja til að starfa þar er hann að meginreglunni til tryggður af færeyska almannatryggingakerfinu. Í sumum er einstaklingur þó tryggður af almannatryggingum í hinu landinu. Til dæmis þegar um er að ræða útsenda starfsmenn eða ef einnig er starfað í öðru landi en Færeyjum.

Aðild að almannatryggingum í tilteknu landi felur í sér að þú lýtur reglum þess lands í málum á borð við:

Starfað eða búið í öðru norrænu landi

Í sumum tilvikum þarf að huga sérstaklega að því hvar maður á skattalega heimilisfesti og aðild að almannatryggingum. Það á við:

  • Ef þú býrð í Færeyjum en starfar í öðru norrænu landi
  • Ef þú býrð í öðru norrænu landi en starfar í Færeyjum
Almannatryggingar

Meginreglan er sú að einstaklingur er tryggður af almannatryggingum í því landi sem hann starfar í. Ef starfað er í tveimur norrænum löndum nýtur viðkomandi almennt almannatrygginga í því landi þar sem hann starfar í meira en 25% tímans, eða í því landi þar sem stærstur hluti vinnunnar er inntur af hendi. Sérstakar reglur gilda þó ef starfað er í Færeyjum og Danmörku eða Færeyjum og Grænlandi. Ef einstaklingur er í vafa um í hvaða landi hann er almannatryggður getur hann haft samband við Almannaverkið í Færeyjum.

Ef starfað er í tveimur löndum þurfa allir vinnuveitendur í öllum löndum sem starfað er í að meginreglunni til að greiða til almannatrygginga í því landi þar sem einstaklingurinn nýtur almannatrygginga.

Skattur

Nánar má lesa um skattamál á vefsvæði TAKS.

Einnig má nálgast frekari upplýsingar um skatt á Nordisk eTax-vefgáttinni sem rekin er í samstarfi skattyfirvalda á Norðurlöndunum.

Stéttarfélög

Nánari upplýsingar um stéttarfélög er að finna á vefsíðum Info Norden.

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.