Tilnefningar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2023

23.05.23 | Fréttir
Nordiska rådets musikpris 2023 - Nominerade
Photographer
norden.org
Þrettán tónlistarmenn, hljómsveitir og hópar eru tilnefndir til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2023. Tilnefningar ársins endurspegla breitt svið tónlistarstefna, allt frá sígildri tónlist, djassi og þjóðlagatónlist til listrænnar samtímatónlistar og tilraunakenndrar rokk- og popptónlistar. Tilkynnt verður um verðlaunahafann í Ósló þann 31. október.

Á meðal hinna tilnefndu í ár eru bæði tónskáld og lagahöfundar, einleikarar, þjóðlagatónlistarmenn og tónlistarhópar auk kantele-leikara, píanista og sinfóníuhljómsveitar. Þar má finna alþjóðlegar stjörnur, framúrstefnulega tónlistarflytjendur, kröftugar raddir og skapandi hæfileikafólk auk reyndra flytjenda sem eiga langan feril að baki. 


Þetta er glæsilegur hópur listafólks frá öllum norrænu löndunum. Tónlistarverðlaunin beina kastljósinu að tónlistarsköpun og -flutningi sem telst hafa mikið listrænt gildi.

Tilnefningarnar eru eftirfarandi: 

Danmörk

Finnland

Færeyjar

Grænland

Ísland

Noregur

Svíþjóð

Álandseyjar

Það var dómnefnd skipuð fulltrúum frá löndunum sem tilnefndi listafólkið.

Tilkynnt um verðlaunahafann 31. október

Handhafi tónlistarverðlaunanna 2023 verður kynntur um leið og handhafar annarra verðlauna Norðurlandaráðs þann 31. október í Ósló í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Verðlaunahafinn hlýtur verðlaunagripinn Norðurljós og 300 þúsund danskar krónur.

Um tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 1965. Þeim er ætlað að vekja athygli á tónlistarsköpun og tónlistarflutningi sem telst hafa mikið listrænt gildi. Verðlaunin eru veitt núlifandi tónskáldi annað hvert ár og hitt árið – eins og í ár – eru þau veitt tónlistarhópi eða -flytjanda.  

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir fimm verðlaun ár hvert: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun. Markmiðið með verðlaunum Norðurlandaráðs er að vekja athygli á verkefnum sem skarað hafa fram úr á sviði lista eða umhverfismála og að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi um umhverfismál.