Leiðbeiningar: eldra fólk í Finnlandi
Á síðunni eru meðal annars upplýsingar um rétt þinn til almannatrygginga og ýmiss konar þjónustu í Finnlandi. Einnig eru upplýsingar um styrki og bætur vegna húsnæðis í Finnlandi og um rétt þinn til heilbrigðisþjónustu og niðurgreiðslu lyfja. Enn fremur er sagt frá skattlagningu lífeyrisgreiðslna, afsláttarmöguleikum fyrir lífeyrisþega og frá ýmsu varðandi erfðamál og fjölskyldulífeyri.
Ef þú flytur til Finnlands frá öðru norrænu landi átt þú rétt á þeirri þjónustu sem sagt er frá á þessari síðu, að því gefnu að þú sért skráð/ur í þjóðskrá Finnlands og hafir lögheimili í Finnlandi.
Átt þú rétt á að flytja til Finnlands?
Ef þú ert ríkisborgari annars norræns ríkis getur þú flutt til Finnlands án þess að hafa sérstakt dvalarleyfi. Ef þú ert ríkisborgari einhvers annars ríkis gilda aðrar reglur. Nánari upplýsingar eru á síðunni Skráning í þjóðskrá í Finnlandi.
Ef þú þarft á langtímaaðhlynningu að halda og vilt flytja til Finnlands frá öðru landi þurfa yfirvöld að aðstoða þig við flutninginn, samkvæmt 9. grein Norðurlandasamningsins um félagslega aðstoð og þjónustu. Yfirvöld á hverjum stað bera ábyrgð á að aðstoða þig við að flytja ef
- þú flytur að eigin ósk,
- þú hefur sérstök tengsl við landið sem flytja á til, og
- talið er að lífsgæði þín muni batna í nýju landi.
Ef þú telur að flutningur til annars lands muni bæta lífsgæði þín, þá mælir það sterklega með því að flutningur skuli verða að veruleika. Hafðu samband við þitt sveitarfélag til að fá aðstoð við að flytja. Ef þörf krefur skaltu vísa til níundu greinar norræna samningsins um félagslega aðstoð og þjónustu. Tengiliðaupplýsingar finnskra sveitarfélaga eru á heimasíðu Sambands finnskra sveitarfélaga (Kuntaliitto).. Hér fyrir neðan er tengill á texta Norðurlandasamningsins um félagslega aðstoð og þjónustu.
Þú þarft einnig að huga að ýmsum praktískum atriðum í tengslum við flutninginn, svo sem tollareglum í Finnlandi, bankamálum og tryggingum. Nánari upplýsingar um flutninga til Finnlands eru á síðunni Leiðbeiningar: að flytja til Finnlands.
Húsnæðismál og húsnæðisstyrkir í Finnlandi
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um húsnæðisleit í Finnlandi, húsnæðisstyrk og heimahjúkrun og um ýmsa þjónustu og dvalarheimili fyrir aldraðra í landinu.
Upplýsingar um hin ýmsu búsetuform og húsnæðisleit í Finnlandi eru á síðunni Búseta í Finnlandi.
Ef þú þiggur lífeyri eða bætur sem veita þér rétt á húsnæðisstyrk lífeyrisþega, og ef þú hefur fasta búsetu í Finnlandi, þá getur þú fengið húsnæðisstyrk lífeyrisþega.
Ýmislegt hefur áhrif á húsnæðisstyrk lífeyrisþega, svo sem búsetuform, fjölskyldumynstur, tekjur og eignir. Styrkurinn er aðeins greiddur vegna kostnaðar við húsnæði í Finnlandi.
Upplýsingar um húsnæðisstyrk lífeyrisþega og aðra húsnæðisstyrki í Finnlandi eru á síðunni Húsnæðisstyrkir í Finnlandi.
Í Finnlandi getur eldra fólk fengið heimaþjónustu og -hjúkrun sem gerir því kleift að búa áfram á eigin heimili. Í Finnlandi er hægt að fá heimahjúkrun og annan stuðning og þjónustu við aldraða á eigin heimili á vegum opinberra aðila, einkaaðila og félagasamtaka.
Slík þjónusta er til dæmis:
- Heimaþjónusta (aðstoð við dagleg störf)
- Heimahjúkrun (hjúkrun og endurhæfing á heimili skjólstæðings eftir tilvísun frá lækni)
- Stuðningsþjónusta (til dæmis aðstoð í tengslum við máltíðir, þrif, innkaup, öryggismál og flutninga)
Góð heimahjúkrun og -þjónusta grundvallast á virknimati skjólstæðingsins og stuðningsáætlun sem unnin er út frá virknimatinu. Nánari upplýsingar er að finna í finnsku félagsþjónustulögunum og á vefsvæði finnska félags- og heilbrigðisráðuneytisins (sjá tengla að neðan).
Gjald er innheimt fyrir þjónustuna, en hugsanlegt er að þú eigir rétt á umönnunarstyrk Kela fyrir lífeyrisþega eða öðrum bótum. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela og á Suomi.fi.
Í Finnlandi geta aðstandendur aldraðra fengið umönnunarstyrk til að sinna þeim inni á heimilinu. Umönnunarstyrkur aðstandenda samanstendur af umönnunarlaunum, nauðsynlegri aðstoð við þjónustuþegann og stuðningi við umönnunaraðilann.
Fólk sem hefur lögheimili á einhverju af velferðarsvæðum Finnlands á rétt á þjónustu sem fellur undir skilgreininguna á umönnunarstyrk aðstandenda. Hægt er að fá laun vegna umönnunar aðstandanda þó að umönnunaraðilinn starfi í öðru norrænu landi.
Sótt er um umönnunarstyrk aðstandenda hjá félags- og heilbrigðismiðstöð viðkomandi velferðarsvæðis. Eftir að sótt er um er hinn tilvonandi þjónustuþegi heimsóttur svo unnt sé að meta umönnunarþörf hans. Nánari upplýsingar um umönnunarstyrk aðstandenda eru á vefsvæði finnska félagsmála- og heilbrigðisráðuneytisins og á vefsvæði samtaka um umönnun aðstandenda í Finnlandi.
Búsetustuðningur í Finnlandi er ætlaður einstaklingum sem af einhverjum ástæðum þurfa styrk og stuðning í þessum málum. Þjónustan getur falist í búsetu með stuðningi allan sólarhringinn eða aðeins að degi til, eða í aðstoð við nauðsynlegar framkvæmdir inni á heimilinu.
Greiðslur fyrir langtímabúsetustuðning á vegum velferðarsvæðis eru tekjutengdar. Einnig er greidd leiga fyrir húsnæðið.
Nánari upplýsingar um búsetustuðning eru á vefsvæði finnska félagsmála- og heilbrigðisráðuneytisins.
Velferðarsvæðið getur séð manneskju sem þarf umönnun, stuðning eða endurhæfingu fyrir félagsþjónustu inni á stofnun ef ekki er mögulegt eða hagkvæmt að gera það á heimili viðkomandi. Nánari upplýsingar um félagsþjónustu inni á stofnunum í Finnlandi eru á vefsvæði finnska félagsmála- og heilbrigðisráðuneytisins.
Réttur til almannatrygginga og heilbrigðisþjónustu í Finnlandi
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um almannatryggingar, lífeyri, rétt þinn til heilbrigðisþjónustu í Finnlandi og um að taka hjálpartæki og lyf meðferðis þegar flutt er til Finnlands.
Hvar átt þú aðild að almannatryggingum?
Ef þú býrð í Finnlandi og færð ellilífeyri eða örorkulífeyri eingöngu frá öðru norrænu landi, þá átt þú aðild að almannatryggingum í Finnlandi. Ef þú býrð í fleiri en einu landi, þá áttu aðild að almannatryggingum þess lands sem þú telst hafa sterkust tengsl við.
Á síðunni Hvar átt þú aðild að almannatryggingum? eru upplýsingar um reglur í tengslum við almannatryggingar. Nánari upplýsingar um finnskar almannatryggingar eru á síðunni Almannatryggingar í Finnlandi fyrir fólk sem býr þar eða starfar.
Afslættir og eldriborgarakort
Fylgja lífeyrisgreiðslurnar þér til Finnlands?
Reglur þess lands, sem þú færð lífeyri frá, skera úr um það hvort þú getur fengið lífeyrinn greiddan til Finnlands. Nánari upplýsingar um ellilífeyri í norrænu löndunum eru hér fyrir neðan.
Átt þú rétt á heilbrigðisþjónustu í Finnlandi?
Allir íbúar Finnlands eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Nánari upplýsingar eru á síðunni Réttur til heilbrigðisþjónustu í Finnlandi.
Getur þú fengið lyfjakostnað niðurgreiddan í Finnlandi?
Upplýsingar um lyf í Finnlandi, lyfjakaup með erlendum lyfseðlum og rétt þinn til niðurgreiðslu á lyfjakostnaði í Finnlandi eru á síðunni Lyf og niðurgreiðsla lyfjakostnaðar í Finnlandi.
Viltu ferðast eða flytja með lyf til Finnlands?
Þú mátt flytja lyfseðilsskyld lyf til eigin nota á milli ESB- og EES-landa í magni sem samsvarar eins árs birgðum. Þú gætir þurft að sanna að skrifað hafi verið upp á lyfið fyrir þig persónulega.
Nánari upplýsingar um flutning lyfja til og frá Finnlandi er á síðunni Lyf og niðurgreiðsla lyfjakostnaðar í Finnlandi.
Máttu flytja til Finnlands með hjálpartæki?
Kynntu þér reglur brottfararlandsins um millilandaflutninga með hjálpartæki áður en þú flytur. Á síðunum hér fyrir neðan finnur þú upplýsingar um að flytja með hjálpartæki til norrænu landanna. Upplýsingar um að flytja til Finnlands með hjálpartæki eru á síðunni sem fjallar um Finnland.
Hvernig er lífeyrir þinn skattlagður?
Ef þú býrð í Finnlandi og þiggur lífeyri frá öðru norrænu landi þarftu að gefa lífeyristekjurnar upp í báðum löndunum. Þú greiðir svo skatt í því landi sem þú þiggur lífeyrinn frá. Þú greiðir líka skatt af lífeyrinum í búsetulandi þínu, en upphæðin sem þú hefur þegar greitt í hinu landinu er frádráttarbær. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði norrænu skattagáttarinnar (Nordisk eTax).
Andlát og erfðamál í Finnlandi
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um erfðaskrá, erfðamál og fjölskyldulífeyri í Finnlandi.
Upplýsingar um að tilkynna dauðsfall í Finnlandi og um að gera yfirvöldum í öðru norrænu landi viðvart, auk upplýsinga um erfðamál, skrá yfir eignir dánarbús og erfðafjárskatt sem koma að gagni þegar aðstandandi fellur frá í Finnlandi, eru á síðunni Andlát aðstandanda í Finnlandi.
Upplýsingar um fjölskyldulífeyri í Finnlandi, eða lífeyri eftirlifandi maka og barna, eru á síðunni Dánarbætur í Finnlandi.
Átt þú rétt á fjölskyldulífeyri í Finnlandi þegar aðstandandi þinn fellur frá?
Upplýsingar um fjölskyldulífeyri í Finnlandi, eða lífeyri eftirlifandi maka og barna, eru á síðunni Dánarbætur í Finnlandi.
Afslættir og kort eldri borgara
Ýmsir afslættir eru í boði fyrir ellilífeyrisþega, til dæmis af fargjöldum í lestir, rútur og strætisvagna, auk afsláttar í líkamsræktarstöðvar og á menningarviðburði. Afslátturinn fæst gegn framvísun persónuskilríkja eða korts eldri borgara. Nánari upplýsingar eru á Suomi.fi.
Hvar getur þú fengið aðstoð?
Upplýsingar um þjónustu og afslætti fyrir eldri borgara eru á vefsvæði finnska félagsmála- og heilbrigðisráðuneytisins.
Nánari upplýsingar
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.