Leiðarvísir: starfað á Álandseyjum

jobba på Åland
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Hér eru gefnar upplýsingar um það helsta sem hafa þarf í huga í tengslum við atvinnuleit á Álandseyjum.

Ef þú ert að íhuga að leita að þér að vinnu á Álandseyjum eru nokkur atriði sem þú þarft að hafa í huga. Þar á meðal er atvinnuleit, viðurkenning starfsréttinda, skattur, almannatryggingar, flutningar, húsnæði og fleira. Hér að neðan er gátlisti fyrir mikilvægt sem þarf að hafa í huga ef þú vilt vinna á Álandseyjum.

Atvinnuleyfi og dvalarleyfi á Álandseyjum

Ef þú ert ríkisborgari norræns lands getur þú flutt til Álandseyja til að búa þar og starfa án þess að þurfa vegabréfsáritun, atvinnuleyfi eða dvalarleyfi. Upplýsingar um hverjir þurfa atvinnu- eða dvalarleyfi til að flytja til Álandseyja og hvernig skráning fer fram er að finna á síðunni „Atvinnu- og dvalarleyfi á Álandseyjum“.

Atvinnuleit á Álandseyjum

Þú finnur upplýsingar um atvinnuleit á Álandseyjum á upplýsingasíðum Info Norden.

Ert þú í atvinnuleit á Álandseyjum og þiggur atvinnuleysisbætur frá öðru norrænu ríki?

Ef þú færð atvinnuleysisbætur í öðru ESB- eða EES-ríki getur þú yfirleitt fengið þær í allt að þrjá mánuði á meðan þú ert í atvinnuleit. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðum Info Norden.

Viðurkenning erlendra prófgráða á Álandseyjum

Hér eru gefnar upplýsingar um hvernig þú færð erlenda prófgráðu viðurkennda á Álandseyjum. Einnig eru gefnar upplýsingar um mat á menntun og hvernig það gengur fyrir sig á Álandseyjum.

Stéttarfélög á Álandseyjum

Hér má lesa um stéttarfélög og atvinnuleysistryggingasjóði á Álandseyjum og hvernig skal hafa samband við vinnuverndaryfirvöld á staðnum. Einnig eru gefnar upplýsingar um fulltrúa stéttarfélaga á Álandseyjum. Auk þess má fá upplýsingar um laun og ráðningarkjör með því að hafa samband við viðeigandi stéttarfélag.

Skattar

Þegar þú byrjar að vinna þarftu að hafa finnska kennitölu og finnst skattkort. Til að geta greitt skatt af launum þínum þarf vinnuveitandi þinn skattkort sem þú færð frá skattstofu Álandseyja í Maríuhöfn. Mundu að hafa meðferðis gild persónuskilríki.

Félagslegt öryggi, heilbrigðisþjónusta og fjölskyldubætur á Álandseyjum.

Að vera tryggð(ur) í landi þýðir að þú nýtur réttinda í almannatryggingakerfis þess lands. Hér eru gefnar upplýsingar um almannatryggingar á Álandseyjum

Starf eða búseta í öðru norrænu landi

Í sumum tilfellum þarf að hafa sérstakar gætur á skattlagningu og almannatryggingum. Hjá Nordisk eTax starfa sérfræðingar skattyfirvalda á Norðurlöndum.Kynntu þér hvaða skattareglur gilda ef þú býrð í einu norrænu landi en starfar í öðru.

Þetta á við

  • ef þú býrð á Álandseyjum og starfar í öðru norrænu landi
  • ef þú býrð í öðru norrænu landi og starfar á Álandseyjum

Árstíðabundin störf fyrir ungmenni

Nordjobb útvegar fólki á aldrinum 18 til 30 ára árstíðabundin störf á Norðurlöndum.

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.