Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2021

25.02.21 | Fréttir
Omslag av de nominerade till Nordiska rådets litteraturpris 2021
Photographer
norden.org
14 norrænar skáldsögur, smásagnasöfn og ljóðabækur eru tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2021. Bækurnar sem tilnefndar eru í ár koma frá öllum norrænu löndunum og málsvæðunum. Verkin bera vitni um öflugt svið fagurbókmennta og sum þeirra eru eftir höfunda sem hafa áður hlotið tilnefningu til verðlaunanna. Tilkynnt verður hver hlýtur verðlaunin í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn í nóvember.

Það að skrifa á blautan pappír, hnignun og fýsnir kapítalismans sem brenna til kaldra kola um borð í Scandinavian Star, félagsraunsæislegar lýsingar á nánum samböndum og nánd tungumálsins, höfnun málamiðlana og dalur fullur af plastblómum eru aðeins fáein dæmi um viðfangsefni hinna tilnefndu verka í ár.

Hér eru verkin sem tilnefnd eru til bókmenntaverðlaunanna í ár:

Danmörk

Finnland

Færeyjar

Grænland

Ísland

Noregur

Samíska málsvæðið

Svíþjóð

Álandseyjar

Dómnefndir skipaðar fulltrúum frá löndunum hafa tilnefnt verk til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2021.

Verðlaunin veitt 2. nóvember

Handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2021 verður kynntur þann 2. nóvember í Kaupmannahöfn í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Verðlaunahafinn hlýtur að launum verðlaunagripinn Norðurljós og 300 þúsund danskar krónur.

Um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 1962 fyrir fagurbókmenntaverk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Það getur verið skáldsaga, leikverk, ljóðabók, smásagnasafn eða ritgerðasafn sem uppfyllir strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi.

Markmið hinna fimm verðlauna Norðurlandaráðs er að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi um umhverfismál, svo og að vekja athygli á verkefnum sem skarað hafa fram úr á sviði lista eða umhverfismála.

Mød de nominerede til Nordisk Råds litteraturpris 2021.

Mere information: www.norden.org/litteraturpris