Leiðbeiningar: að flytja frá Finnlandi
Þegar flutt er til annars lands frá Finnlandi þarf að ganga frá ýmsum málum gagnvart yfirvöldum og stofnunum áður en landið er yfirgefið. Á þessari leiðbeiningasíðu eru greinargóðar upplýsingar um það að tilkynna flutning og uppfæra upplýsingar í þjóðskrá, um almannatryggingar, skattamál, aðild að atvinnuleysistryggingasjóði og tollaafgreiðslu búslóðar, auk fleiri atriða. Góður undirbúningur auðveldar þér að koma þér fyrir í nýja heimalandinu.
Að tilkynna flutning í Finnlandi
Sé flutt til skemmri tíma, en þó lengur en til þriggja mánaða, þarf ávallt að tilkynna flutninginn til finnsku stofnunarinnar um stafræna væðingu og lýðfræðigögn (Digi- ja väestötietovirasto) og finnsku almannatryggingastofnunarinnar (Kela). Að sjálfsögðu þarf einnig að tilkynna um flutning til lengri tíma.
Skráning í þjóðskrá í nýju búsetulandi
Samkvæmt Norðurlandasamningnum um almannaskráningu getur hver íbúi á Norðurlöndum aðeins verið skráður í þjóðskrá eins norræns lands í einu. Skráningin fer alltaf fram samkvæmt reglum þess lands sem flutt er til. Á Álandseyjum gilda sömu reglur um skráningu í þjóðskrá og á meginlandi Finnlands.
Þegar flutt er frá Finnlandi þarft þú að skrá þig í þjóðskrá í nýja landinu ef:
- þú ferð til Grænlands til lengri tíma en 3 mánaða
- þú ferð til til Danmerkur, Færeyja, Íslands eða Noregs til lengri tíma en 6 mánaða
- þú ferð til Svíþjóðar til lengri tíma en 12 mánaða
Búir þú samtímis í tveimur mismunandi löndum ber þér að skrá þig í þjóðskrá þess lands sem þú verð mestum tíma í (minnst 183 daga á ári).
Nánari upplýsingar um skráningu í þjóðskrá í norrænu löndunum eru á upplýsingasíðum um skráningu í þjóðskrá í Danmörku, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð.
Almannatryggingar og atvinnuleysisbætur
Sé flutt til annars lands frá Finnlandi á ávallt að tilkynna finnsku almannatryggingastofnuninni (Kela) það sérstaklega. Kela ákveður á grundvelli tilkynningar þinnar hvort þú getir áfram átt aðild að finnskum almannatryggingum meðan á dvöl í öðru landi stendur.
Upplýsingar um það hvar þú átt aðild að almannatryggingum eftir flutninga frá Finnlandi eru á síðunni Hvar átt þú aðild að almannatryggingum?
Ef þú hefur áður átt rétt á finnskum atvinnuleysisbótum og ferð til annars lands vegna vinnu getur þú flutt áunninn rétt þinn á finnskum atvinnuleysisbótum með þér til nýja starfslandsins. Nánari upplýsingar um þetta eru á síðunni Atvinnuleysisbætur í Finnlandi.
Lífeyrir í Finnlandi
Lífeyrir úr almannatryggingasjóði, lágmarkslífeyrir og húsnæðisstyrkur lífeyrisþega er aðeins greiddur þeim sem hafa búsetu í Finnlandi. Fólk sem þiggur lífeyri úr almannatryggingasjóði og lágmarkslífeyri getur þó dvalið tímabundið í öðru landi án þess að fyrirgera lífeyrisrétti sínum.
Ef þú þiggur lífeyri frá Finnlandi og flytur til annars norræns lands áttu áfram rétt á að fá sömu upphæð starfstengds lífeyris og fyrir flutninginn.
Nánari upplýsingar eru á þjónustuvefnum Suomi.fi.
Skattlagning
Almenna reglan er að þú greiðir skatt í því landi sem þú býrð eða aflar þér tekna í. Búir þú í öðru landi en þú aflar tekna í kunna tekjurnar að hafa áhrif á skattlagningu þína í búsetulandinu. Þess vegna þarftu að telja fram til skatts allar tekjur frá bæði búsetulandinu og starfslandinu.
Ef þú ert finnskur ríkisborgari sem hefur flutt til annars lands berðu vanalega almenna skattskyldu í Finnlandi það ár sem flutt er og næstu þrjú árin á eftir. Almennri skattskyldu í Finnlandi getur þó lokið fyrr ef þú sýnir fram á að þú hafir ekki haft nein skattaleg tengsl við Finnland á viðkomandi skattlagningarári .
Nánari upplýsingar um skattamál eru á norrænu skattagáttinni, Nordisk eTax, og á síðum um skattamál í norrænu löndunum.
Annað sem hafa þarf í huga
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um búslóðaflutninga, ökutæki og ökuréttindi.
Flutt með farangur eða búslóð
Þegar þú flytur frá Finnlandi til annars lands skaltu kynna þér reglur þess lands sem flutt er til. Athugaðu hvort búslóð þín inniheldur eitthvað sem ekki má flytja til landsins, og hvernig tollafgreiðslu er háttað. Litið er á flutninga frá meginlandi Finnlands til Álandseyja sem flutninga innan Finnlands.
Flytjir þú frá Finnlandi til norræns lands eða sjálfstjórnarsvæðis sem ekki er í Evrópusambandinu (Noregs, Íslands, Færeyja eða Grænlands) þarftu að senda tollinum innflutningstilkynningu vegna farangurs þíns og/eða búslóðar. Frjálst er að flytja með farangur og búslóð milli Evrópusambandslanda og óþarfi að tilkynna tollinum sérstaklega um slíkt.
Nánari upplýsingar eru í tollareglum landsins sem flutt er til og á vefsvæði finnskra tollayfirvalda.
Ökutæki
Ef þú flytur til annars norræns lands með bíl eða annað ökutæki þarf yfirleitt að skrá ökutækið í nýja landinu. Fólk sem býr annars staðar en í Finnlandi en dvelur tímabundið í Finnlandi má nota þar ökutæki sem skráð er annars staðar að vissum skilyrðum uppfylltum. Nánari upplýsingar um þessi skilyrði eru hér fyrir neðan.
Ef þú skilur bíl þinn eftir í Finnlandi og ekur honum ekkert utan Finnlands þarftu ekki að skrá hann í nýja búsetulandinu. Ökutæki þarf alltaf að hafa gilda ökutækjatryggingu. Athugaðu að ekki munu öll tryggingafélög vilja tryggja ökutæki ef eigandinn hefur ekki fasta búsetu í landinu.
Ökuréttindi
Finnskt ökuskírteini veitir ökuréttindi alls staðar á Norðurlöndum í þeim ökutækjaflokki sem merktur er á kortið. Sama gildir um íslenskt ökuskírteini. Nánari upplýsingar eru hér fyrir neðan.
Leiðbeiningasíður vegna flutninga
Flytjir þú til Danmerkur, Færeyja, Grænlands, Íslands, Noregs, Íslands eða á Svalbarða gætir þú haft gagn af leiðbeiningasíðunum hér fyrir neðan.
Nánari upplýsingar
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.